Föstudagur 16.12.2011 - 14:12 - Ummæli ()

„Ekki hægt að sinna ábyrgðarstarfi fyrir aðila sem á í dómsmáli gegn manni“

Borgin fór í mál við skoðunarmann reikninga borgarinnar sem er framvæmdastjóri peningamarkaðssjóða Landsbankans að aðalstarfi.

Ari Skúlason hefur sagt af sér sem kjörinn skoðunarmaður reikninga Reykjavíkurborgar vegna málaferla sem borgin á í við Landsvaka – peningamarkaðssjóði Landsbankans – en Ari starfar þar sem framkvæmdastjóri.

Fréttatíminn segir frá þessu í dag. Borgin stefndi í sumar peningamarkaðssjóðum Landsbankans, bæði þeim gamla og þeim nýja, vegna taps sem borgin varð fyrir við fall Landsbankans haustið 2008.

Það er ekki hægt að sinna ábyrgðarstarfi fyrir aðila sem á í dómsmáli gegn manni,“ segir Ari í samtali við Fréttatímann. „Mér fannst ég því ekki hæfur. Ég hef ekki sinnt starfinu síðan í vor.“

Fram kemur í blaðinu að ekki verði skipaður nýr skoðunarmaður heldur mun borgin skipa endurskoðunarnefnd til að gegna því hlutverki sem kjörnir skoðunarmenn borgarinnar hafa gegnt fram að þessu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is