Miðvikudagur 21.12.2011 - 11:07 - Ummæli ()

Skýrsla RNA lélegt afritunarefni um efnahagsmál, illa rekin fyrirtæki og banka?

Viðskiptafræðingur segir lítið í skýrslu RNA sem ekki hafi komið fram áður í ritum Seðlabanka Íslands

Níu binda skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er lítið annað en áhugavert heimspekirit en að öðru leyti fremur lélegt afritunarefni um efnahagsmál, illa rekin fyrirtæki og banka.

Þetta fullyrðir Sveinn Óskar Sigurðsson, viðskiptafræðingur, í grein í Morgunblaðinu og segist hafa komist að þessari niðurstöðu með því að lúslesa bæði skýrsluna í heild sinni auk nokkurra rita Seðlabanka Íslands. Telur Sveinn að allt að því 70 prósent þess sem fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar sé tekið beint upp úr ritum Seðlabankans.

Eftir útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis (RNA), sem kom út í 9 bindum, virtist sem einhverjir hefðu ætlað að sannleikann væri þar að finna og þar lægi hundurinn grafinn, ástæðan fyrir hruni hins íslenska fjármálakerfis.

Eftir að hafa lúslesið þessa skýrslu, Peningamál Seðlabanka Íslands (SÍ), Fjármálatíðindi og svo hefti Fjármálastöðugleika SÍ, kemur í ljós að um eða yfir 70% (með fyrirvara) af efni skýrslu RNA er endurritað eða afritað úr framangreindum ritum SÍ.

Um 20% efnisins virðast sprottin úr viðtölum (svokölluðum yfirheyrslum) við einstaklinga sem tengdust hruninu beint eða óbeint sem og skýrslum úr bankakerfinu sem auðvitað lágu til grundvallar hvort eð var innan veggja SÍ. Það sem hinsvegar virðist rýma um 10% efnis skýrslu RNA en 90% af skynseminni er að finna í 8. hefti hennar og varðar siðfræði. Skýrsla RNA er því heimspekilega áhugaverð, annars fremur lélegt afritunarefni um efnahagsmál, illa rekin fyrirtæki og banka.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is