Fimmtudagur 22.12.2011 - 20:39 - Ummæli ()

Nektartíma í sundlaugum og fjölga álfum. Ýmsar forvitnilegar hugmyndir um betri Reykjavík

Borgarbúar eru ófeimnir við að koma ýmsum hugmyndum sínum um betri höfuðborg á framfæri. Mynd af vef Náttúrunnar

Nektartíma í almenningssundlaugum, fleira álfa og hraðahindranir sem fletjast út eru meðal þeirra hugmynda sem settar hafa verið fram af hálfu borgarbúa í átakinu Betri Reykjavík.

Átakið Betri Reykjavík sem borgaryfirvöld komu á fót til að gefa borgarbúum tækifæri að hafa áhrif á borgina sína þykir hafa tekist vel til og fjölmargar ábendingar hafa borist sem borgaryfirvöld fara yfir í kjölfarið. Hverja hugmynd sem berst geta borgarbúar sjálfir rökrætt og gefið einkunn með eða móti á vef átaksins; betrireykjavik.is.

Margir sem þar skrifa vilja sjá gróðursælli Reykjavík og vilja meira líf í garða borgarinnar. Hægt sé að bæta marga almenningsgarða verulega frá því sem nú er. Sömuleiðis tjá sig margir um samgöngumál. Bættar strætisvagnasamgöngur eru fjölmörgum hugleikin og nokkrir vilja sjá lestir og sporvagna á ferð um borgina.

Meðal þess forvitnilegra sem lesa má um á þeim vef eru óskir um sérstakan nektartíma í almenningssundlaugum en átta aðilum finnst það góð hugmynd meðan tíu aðrir eru á móti þegar þetta er skrifað. Er á það bent af andstæðingum að þegar sé hægt að valsa um nakinn á svölum Sundhallarinnar ef því er að skipta.

Þá telur einn aðila ráð að fjölga álfum og gera mun meira úr álfatrú Íslendinga í höfuðborginni. Af slíku séu erlendir ferðamenn hrifnir og slíkt geti aukið aðdráttarafl höfuðborgarinnar. Annar vill taka upp nýstárlegar hraðahindranir sem hækka má og lækka eftir hentugleika.

Fleiri hugmyndir sem fram hafa komið eru meðal annarra:

  • Dæmdir smáglæpamenn týni reglulega rusl meðfram umferðargötum
  • Stjörnufræðimiðstöð verði reist í Norðlingaholti
  • Auka orðaforða í töluðu máli
  • Hverfi fyrir hjólhýsabyggð
  • Lappa upp á Arnarhól
  • Stofna fleiri hugmyndavefi að betra skipulagi
  • Byggja völundarhús á Klambratúni
  • Reisa fornaldarbæ Ingólfs Arnarsonar
  • Drive thru ruslatunnur

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is