Föstudagur 23.12.2011 - 08:06 - Ummæli ()

Skortur á eignum á verðbilinu 100 til 200 milljónir á höfuðborgarsvæðinu

Eignir í grónum hverfum í höfuðborginni seljast vel og skortur er á dýrari eignum á því svæði. Mynd af vef Landmarks

Verulegur skortur er á eignum á verðbilinu 100 til 200 milljónir króna í grónum hverfum höfuðborgarinnar að sögn fasteignasala. Ágætur markaður er fyrir slíkum eignum en framboðið sama og ekkert.

Þetta staðfestir Sverrir Kristinsson, fasteignasali hjá Eignamiðlum, í samtali við Morgunblaðið sem segir nægan markað vera fyrir eignir á þessu verðbili. Slíkar eignir seljist hratt og vel þegar þær komi í sölu sem sé reyndar sjaldan. Hann segir einnig að það offramboð á íbúðum sem hér var kringum hrunið heyri nú sögunni til. Skortur sé á velflestum stærðum og gerðum íbúða í höfuðborginni.

„Markaðurinn fyrir vel staðsettar eignir á verðbilinu 100 til 200 milljónir króna er góður. Flestallar eignir í þessum verðflokki hjá okkur eru seldar. Ég hef ekki á hraðbergi hversu mörg húsin eru sem við höfum tekið til sölu í Þingholtunum, á Ægisíðu og í Vesturbænum en flest eru seld. Ef húsið er á góðum stað, er vel skipulagt og verðið rétt eru söluhorfur góðar. Við auglýsum eftir eignum og höfum til dæmis ekki fengið neina eign í Þingholtunum af þeirri gerð sem við höfum verið að leita að, þá á verðbilinu 100-150 milljónir. Það hefur ekkert komið inn af slíkum eignum til okkar síðustu mánuði.“

„[...]Verðlag er nokkuð stöðugt, myndi ég segja. Ég merki ekki verðrýrnun á síðustu tveim misserum enda er framboðið ekki það mikið. Verðið getur ekki lækkað meira þegar eftirspurn er meiri en framboð. Svo þarf að taka mið af lóðar- og byggingarkostnaði. Miðað við þá sölu sem er í gangi núna geri ég frekar ráð fyrir að það verði skortur á íbúðum eftir rúmt ár. Eftirspurnin á ýmsum eignum er oft miklu meiri en framboð.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is