Tveir mánuðir til stefnu eigi að standa við yfirlýsingar um þjóðaratkvæði um stjórnarskrá

Forsætisráðherra hefur lýst vilja til að þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrártillögur stjórnlagaráðs fari fram samhliða forsetakosningum í júní. Alþingi þarf að samþykkja að setja málið í þann farveg fyrir marslok eigi af því að verða.
„Ég vil að frumvarpið fari fyrir nýja stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og nefndin ræði við stjórnlagaráð og þá sérfræðinga sem voru því til halds og trausts. Síðan vil ég að frumvarpið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í samtali við Fréttablaðið þann 1. október síðastliðinn.
Eigi þessi vilji forsætisráðherrans að ganga eftir og þjóðaratkvæðagreiðsla að fara fram samhliða forsetakosningunum í lok júní á þessu ári, líkt og gert er ráð fyrir í þingsályktunartillögu sem er til meðferðar á Alþingi, þarf meðferð málsins að ljúka fyrir lok mars. Samkvæmt því hefur þingið nú aðeins tvo mánuði til viðbótar til að ljúka við meðferð sína á tillögum stjórnlagaráðs og samþykkja að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Í lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu, sem Alþingi samþykkti í júní 2010, segir í 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 1. gr.:
Þjóðaratkvæðagreiðsla skv. 1. mgr. 1. gr. skal fara fram í fyrsta lagi þremur mánuðum og í síðasta lagi einu ári eftir að þingsályktunartillaga hefur verið samþykkt á Alþingi.
Álykti Alþingi að fram skuli fara almenn og leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni eða lagafrumvarp fer um framkvæmdina samkvæmt lögum þessum.
Alþingi hefur haft málið til meðferðar frá því stjórnlagaráð lauk störfum síðastliðið sumar. Málið kom til formlegrar meðferðar í þinginu þann 4. október og var þá vísað til meðferðar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins. Í þeirri þingsályktunartillögu sem er til meðferðar í þinginu er einnig gert ráð fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um málið eigi síðar en samhliða forsetakosningunum í júní 2012 þannig að afgreiða megi frumvarpið endanlega frá Alþingi fyrir almennar þingkosningar sem fram eiga að fara vorið 2013 en stjórnarskránni verður ekki breytt nema hún sé samþykkt tvívegis á Alþingi og almennar þingkosningar haldnar á milli.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins hefu tekið málið fyrir á níu fundum í vetur en hefur nú samkvæmt heimildum Eyjunnar vísað því til umfjöllunar hjá Lagastofnun Háskólans.
Í umræðum um væntanlegar forsetakosningar og stöðu forsetaembættisins hafa fræðimenn vakið athygli á þeirri óvissu sem nú yrði um hlutverk forseta Íslands þegar gengið verður til kosninga í júní hafi ekki áður skýrst hvaða lending fæst í meðferð Alþingis á stjórnarskrármálinu en fjölmörg ákvæði eru bæði í gildandi stjórnarskrá og í tillögum stjórnlagaráðs um hlutverk og vald forseta Íslands.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is