Hartnær þriðjungur framhaldsskólanema orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi

Stór hluti framhaldsskólanema hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af einhverju taginu. Mynd af vef HÍ og tengist greininni ekki beint
Tæplega þriðjungur allra framhaldsskólanema í landinu telja sig hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af einhverju tagi samkvæmt nýrri könnun. Stúlkur eru þar í meirihluta en tæplega 36 prósent þeirra hafa orðið fyrir slíku meðan tæp 18 prósent stráka segja sömu sögu.
Þetta kemur fram í rannsókn Rannsóknar og greiningar en rannsókn þessi var gerð í samvinnu við Barnaverndarstofu. Er kynferðislegt ofbeldi í þessu tilfelli skilgreint sem að einstaklingur undir átján ára aldri hafi verið þvingaður eða neyddur til kynferðislegra athafna gegn vilja sínum.
Önnur rannsókn leiðir ennfremur í ljós að 34,5 prósent nemenda í 9. og 10.bekk grunnskóla hafa orðið vitni að alvarlegu rifrildi og/eða líkamlegu ofbeldi á heimili sínu.
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor í sálfræði við HR, segir niðurstöðurnar gefa til kynna að þeir sem segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi sýni meiri einkenni þunglyndis, reiði og kvíða en hinir sem ekki hafa orðið fyrir slíku. Þá segir hún tölur sýna að hreyfing og ástundun íþrótta skipti meira máli fyrir þá sem búa við slæmar heimilisaðstæður en aðra. Þá skipti jákvætt viðhorf til skóla ennfremur verulegu máli um vellíðan barna og unglinga.
Morgunblaðið greindi frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is