Fimmtudagur 19.01.2012 - 13:58 - Ummæli ()

Ekkert iðnaðarsalt í saltfisknum. 300 tonn Ölgerðarinnar langt innan við 1% af heildarnotkun

Það þýðir ekkert að nota iðnaðarsalt í saltfiskverkun. Þá verður fiskurinn gulleitur eða rauðleitur og fellur í verði.

Það er ekkert iðnaðarsalt notað í íslenska saltfiskinn heldur vottað gæðasalt sem unnið er úr sjó. Og þau 300 tonn af iðnaðarsalti sem um 90 íslensk matvælafyrirtæki keyptu af Ölgerðinni á síðasta ári eru þrátt fyrir allt aðeins brot af því saltmagni sem notað er í matvælaframleiðslu hér á landi ár hvert. Þetta upplýsir Morgunblaðið í dag og hefur stúderað hagtölur og kannað staðreyndir um saltnotkun hérlendis.

Saltinnflutningur Íslendinga er á bilinu 65.000-113.000 tonn á ári og ræðst magnið af veðráttunni og því hversu mikið þarf að salta vegina. Af heildarinnflutningnum fara um 40-50.000 tonn í að vinna saltfiskinn, eina helstu útflutningsvöru Íslendinga.

Og þar kemur ekkert iðnaðarsalt við sögu. Helgi Már Reynisson, framkvæmdastjóri Stólpavíkur, sem flytur inn salt, segir við Morgunblaðið að salt til saltfiskframleiðslu sé ekki verksmiðjuframleitt heldur hrein náttúruafurð. Það er framleitt með sólþurrkun í Túnis án þess að notuð séu nokkur aukaefni. „Þetta er sólarsalt,“ segir Helgi og staðhæfir að í því sé brot af því magni af kopar sem er í vottuðu matarsalti og margfalt minni kopar en í því óvottaða iðnaðarsalti sem íslensku matvælafyrirtækin keyptu af Ölgerðinni.

„Matvælastofnun fylgist mjög vel með þessu hjá fiskvinnslunni,“ sagði Helgi. „Innflytjendur vita hvað þetta er mikilvægt og eru að sjálfsögðu með öll vottorð í lagi. Framleiðendur verða að vera með þessi saltvottorð í sínum gæðahandbókum til þess að fá ekki athugasemdir frá Matvælastofnun.“

Ásbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Fiskkaupa hf., sem framleiðir saltaðan fisk til útflutnings, segist gera miklar kröfur til saltsins og þar komi ekkert iðnaðarsalt til greina í framleiðslunni:

„Við getum aldrei notað iðnaðarsalt í okkar vörur,“ segir hann. „Við notum sjávarsalt sem stenst ströngustu kröfur sem gerðar eru til salts.“ Saltið í fiskvinnsluna er keypt í eins tonna sekkjum fóðruðum með þykku vatnsheldu og vindheldu plasti. Því fylgir gæðavottorð.

Í iðnaðarsalti er tíu sinnum meiri kopar en í saltinu sem notað er við saltfiskverkunina. Ásbjörn segir að gæði saltsins sem notað er leyni sér ekki í saltfiskinum. Hágæðasalt þurfi til að saltfiskur verði hvítur og fallegur. Öðru vísi er fiskurinn ekki gjaldgengur á kröfuhörðum mörkuðum. Sé notað salt með kopar verði fiskurinn gul- eða raunleitur sem felli hann í verði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is