Guðfríður Lilja segist undir miklum þrýstingi í Landsdómsmálinu: Mikil ólga innan VG
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, segir mikla ólgu innan VG vegna tillögu Bjarna Benediktssonar um að landsdómsmálið gegn Geir H. Haarde verði dregið til baka.
Þrír þingmenn VG, Guðfríður Lilja, Ögmundur Jônasson og Jón Bjarnason, hafa lýst stuðningi við tillöguna en Guðfríður Lilja segir í viðtali við mbl.is að fast sé sótt að sér að falla frá þeirri afstöðu.
„Já, það má nú segja það, það er gríðarlegur þrýstingur að gera það,“ segir hún en segist bera þá ábyrgð sem hluti af ákæruvaldinu í málinu að láta flokkspólitík ekki hafa áhrif á afstöðu sína.
„Það sem gerðist í þessu landsdómsmáli er að mínu mati ákveðin skrumskæling á því uppgjöri sem þarf að fara fram,“ segir hún. „Að mínu mati er það að leiða einn mann fyrir dóm skrumskæling og liður í samtryggingu stjórnmálanna sem ætlar að hvítþvo hendur sínar af ölllu því sem gerðist með því að láta einn mann svara til saka.“
Hún segist vilja alvöru uppgjör við hrunið og breyta þeirri rótgrónu venju að enginn beri ábyrgð. Endurskoða þurfi lög um landsdóm: „Svo að svona klúður endurtaki sig ekki. Þá þarf að fara í gegn um það hvernig fólk er dregið til ábyrgðar. Um það er fjallað bæði í þingmannaskýrslunni og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis,“ segir hún. „Við höfum í raun ekkert breyst og það er í rauninni vandamálið.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is