Fimmtudagur 19.01.2012 - 14:36 - Ummæli ()

Jóhanna Sigurðardóttir: Kannski of seint að greiða þjóðaratkvæði samhliða forsetakosningum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að það kunni að vera orðið of seint að stefna að því að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur að nýrri stjórnarskrá fari fram samhliða forsetakosningunum í lok júní.

Þetta kom fram á Alþingi í morgun þegar Jóhanna svaraði fyrirspurn frá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Í október á síðasta ári lýsti Jóhanna þeim vilja að þjóðaratkvæði um nýja stjórnarskrá færi fram samhliða forsetakosningunum en til þess að svo geti orðið þyrfti Alþingi að ljúka meðferð málsins fyrir lok mars svo hægt verði að halda þá tímafresti sem mælt er fyrir um í lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur.

Bjarni Benediktsson spurði hvernig forsætisráðherra sæi fyrir sér að þjóðaratkvæðagreiðsla ætti að fara fram. „Um hvað á að kjósa?“ spurði hann og sagði flesta fræðimenn sammála um að tillögur stjórnlagaráðs, sem eru í frumvarpsformi, væru „í besta falli ófullburða drög að nýrri stjórnarskrá.“

Hann spurði hvort Jóhanna teldi raunhæft að semja á næstu dögum og vikum frumvarp sem raunhæft yrði að bera undir þjóðina. „Ég tel fullkomlega óraunhæft að það gerist á næstu vikum,“ sagði Bjarni og spurði því hvað leggja ætti fyrir þjóðina ef forsætisráðherra væri enn þeirrar skoðunar að láta þjóðina kjósa um málið samhliða forsetakosningunum. Ætti það að vera frumvarpið sem barst frá stjórnalagaráði eða það frumvarp að viðbættum þeim breytingum verða við þá meðferð sem nú stendur yfir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Eða hvort kjósa eigi um málið eftir að þinglegri meðferð frumvarps sem kæmi frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er lokið; „sem mér þætti sjálfum alveg koma til álita,“ sagði Bjarni og bætti því við að meðferð málsins væri nú hunin slíkri þoku að nauðsynlegt væri að leggja skýrar línur um framhaldið.

Jóhanna sagði að frumvarp stjórnlagaráðs væri nú til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnfend sem hefði sent málið til umsagnar og væri nú að fjalla um umsagnirnar og fara yfir þær. Hún sagði það fara eftir niðurstöðum nefndarinnar hvað gerist næst en hún sagði sinn vilja standa til þess að meðferð nefndarinnar ljúki á næstu vikum í góðri samstöðu. Að því loknu verði lagfæringar og athugasemdir stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sendar stjórnlagaráði til umsagnar í stuttan síma.

„Síðan yrði, ef ég mætti ráða ferðinni, útbúin þingsályktunartillaga um að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Jónanna. „Nú má vera að of seint að það fari í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum en alla vega síðar.“

Hún sagði að þá yrðu menn að leggjast yfir það með hvaða hætti málið verði lagt fyrir þjóðina en sagðist sjá fyrir sér að eftir yfirferð og lagfæringar þingnefndarinnar yrði þjóðinni leyft að taka afstöðu til einstakra kafla frumvarps stjórnlagaráðs, svo breytts, og síðan færi málið að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu í frumvarpsformi til afgreiðslu á Alþingi. Vonandi náist að afgreiða málið áður en þessu kjörtímabili ljúki.

Bjarni Benediktsson tjáði sig á ný um málið og sagðist hafa mjög miklar áhyggjur af því sem er framundan í þessu máli og spurði hvaða þýðingu þjóðaratkvæðagreiðsla ætti eiginlega að hafa sem fram færi án þess að þingið hefði fjallað um málið í frumvarpsformi.

Jóhanna sagði í seinni ræðu sinni að málið hefði komið inn í þingið við upphaf haustþingsins og það hefði verið til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í tvo mánuði. Málið sé langt komið og hún telji meirihluta fyrir því að setja málið í ferli sem miði við að málið fari í frumvarpsbúning og til endanlegrar afgreiðslu að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún sagðist telja mikilvægt að tillögur stjórnlagaráðs fengju að standa sem mest óbreyttar þótt fara þyrfti yfir þær og lagfæra. Þingið hefði hins vegar reynst ófært um að færa þjóðinni nýja stjórnarskrá og því sé nú verið að fara rétta leið að því takmarki.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is