Fimmtudagur 19.01.2012 - 10:40 - Ummæli ()

Landlægt alvöruleysi í eftirliti lýsir miklu virðingarleysi við neytendur

Röng tegund salts, gallaðir brjóstapúðar, ólöglegur áburður. Þrjú nýleg mál þar sem eftirlitsaðilar hafa brugðist skyldum sínum að flestra mati

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor við HÍ, segir að svo virðist sem hér sé landlægt alvöruleysi í öllu opinberu eftirliti og hagsmunir almennings séu oftar en ekki fyrir borð bornir.

Sigurbjörg er sérfræðingur í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands en í samtali við Fréttablaðið vegna tíðra mála af sinnuleysi eftirlitsstofnanna segir hún takmarkaðan skilning vera fyrir hendi á því hvernig umgjörð eftirlits eigi að vera og hvernig sinna eigi slíku eftirliti svo vel sé.

Hún bendir á að eðli málsins samkvæmt sé eftirlit vandasamt verkefni og það öllu erfiðara í fámenni eins og hér á landi. Slíkt feli oft í sér inngrip í starfsemi aðila á markaði og slíkt sé aldrei vinsælt.

„Það er jafnan viðurkennt að líftími eftirlits sé stuttur. Það veikist þar sem tengsl og jafnvel kunningsskapur myndast milli eftirlitsaðila. Þess vegna verður að vera stöðug endurnýjun á verkferlum og vinnulagi til að tryggja gæði og öryggi eftirlitsins.

Hér er nándin enn þá meiri. Fólk fer að þekkjast of náið og eftirlitsaðilar treysta því þá að menn séu að vinna eins og ráð er fyrir gert. Svo er nándin við stjórnmál mikil hér á landi og því aukin hætta á að aðilar á markaði kvarti undan eftirliti við stjórnmálamenn og reyni þannig að kippa í spotta.

Svo virðist ríkja víða einhvers konar landlægt alvöruleysi í eftirliti. Matvælastofnun sem heimilar það að klárað sé að selja birgðir af salti sem stenst ekki ákveðna staðla sýnir fram á alvöruleysi og virðingarleysi gagnvart neytendum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is