Lífeyrissjóðirnir mergsjúga heimilin. Sjóðirnir eiga stærstan hluta verðtryggðra fasteignalána

Verkfræðingur vill vita hvenær þingmenn ætli sér að vinna að lausnum fyrir skuldsett heimili landsins
„Með smá heimildarvinnu og einföldum útreikningum má finna út að verðtryggingarákvæði fasteignalána hefur hækkað skuldir einstaklinga um upphæð að stærðargráðunni 250 milljarðar frá árinu 2008 til dagsins í dag – ég endurtek 250 milljarðar. Og hvert fóru þessir milljarðar svo – jú, að stærstum hluta til lífeyrissjóðanna okkar sem eiga með beinum eða óbeinum hætti langstærstan hluta verðtryggðra fasteignalána landsmanna.“
Það eru þannig íslenskir lífeyrissjóðir sem mergsjúga illa stödd heimili landsins að því er fram kemur í pistli verkfræðingsins Karls Sigfússonar í Fréttablaðinu í dag. Það gera þeir í gegnum verðtryggingarákvæði fasteignalána en á þessari stöðu mála er Karl orðinn pirraður eins og hann orðar það. Spyr hann hvenær þingmenn landsins ætli að láta af innantómu þrasi og fara að vinna fyrir skuldug heimili landsins.
Vissuð þið að í lok árs 2010 voru um 40% íslenskra heimila með neikvæða eignastöðu? Þetta merkir að um 60.000 íslenskar fjölskyldur skulda meira en þær eiga! Til samanburðar má nefna að í lok árs 2007 voru það „aðeins“ um 25.000 fjölskyldur sem voru í þessari erfiðu stöðu. Vandinn hefur því meira en tvöfaldast á aðeins þremur árum. Til að setja þetta í nærtækara samhengi skuldar næstum því annar hver Íslendingur meira en hann á – getur það undir einhverjum kringumstæðum talist eðlilegt eða ásættanlegt?
Það sjá það allir, sem vilja sjá, að staða fjölmargra íslenskra heimila er vonlaus. Ef ekki verður ráðist tafarlaust í róttækar aðgerðir til að leiðrétta skuldastöðuna mun hlutfall eignalausra heimila hækka enn frekar – núverandi aðgerðir stjórnvalda breyta litlu sem engu þar um.
Einn stærsti einstaki orsakavaldurinn á eignabruna heimilanna eru verðtryggð fasteignalán. Þá staðreynd er ekki hægt að hrekja. Með smá heimildarvinnu og einföldum útreikningum má finna út að verðtryggingarákvæði fasteignalána hefur hækkað skuldir einstaklinga um upphæð að stærðargráðunni 250 milljarðar frá árinu 2008 til dagsins í dag – ég endurtek 250 milljarðar. Og hvert fóru þessir milljarðar svo – jú, að stærstum hluta til lífeyrissjóðanna okkar sem eiga með beinum eða óbeinum hætti langstærstan hluta verðtryggðra fasteignalána landsmanna. Það eru sem sagt okkar eigin lífeyrissjóðir sem eru að soga máttinn úr fjölskyldum landsins gegnum verðtryggingarákvæði fasteignalána.
Ég get fullyrt að langflestir landsmenn eru orðnir verulega þreyttir á að horfa upp á okkar lýðræðislega kjörnu stjórnmálamenn eyða tíma sínum og orku í innanhússþras og rifrildi um ráðherrastóla í stað þess að vinna að raunverulegum aðgerðum sem leiðrétta óverðskuldaða stöðu venjulegra íslenskra heimila.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is