Sunnudagur 22.01.2012 - 23:36 - Ummæli ()

Spennan eykst í Samfylkingu. Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir vantrausti á forseta Alþingis

Forseti Alþingis er Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir

Ólgan innan stjórnarflokkanna virðist síst að minnka. Eins og Eyjan hefur skýrt frá um helgina, logar allt stafna á milli innan raða Vinstri grænna eftir atkvæðagreiðslu um Landsdómsmálið á Alþingi á föstudagskvöld. Ástandið í Samfylkingunni er engu betra og nú hafa Ungir jafnaðamenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, lýst vantrausti á forseta Alþingis, Samfylkingarkonuna Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur

Í yfirlýsingu sem Eyjunni barst nú í kvöld segir:

Ungir jafnaðarmenn telja að málshöfðunin gegn Geir H. Haarde sé stjórnskipulega í réttum farvegi og Landsdómur hefur metið meiginhluta ákærunnar tæka til efnislegrar meðferðar. Dómstóllinn á nú aðeins eftir að takast á við spurninguna um sekt eða sýknu Geirs H. Haarde.

Það er ekki einungis óeðlilegt að Alþingi skerist í leikinn með þeim hætti sem lagt er til í tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins, heldur er það beinlínis hættulegt í stjórnskipulagi sem byggir á þrískiptingu ríkisvaldsins. Með því að greiða atkvæði með áframhaldandi meðferð tillögunnar tóku fjórir þingmenn Samfylkingarinnar afstöðu gegn sjálfstæði Landsdóms og þar með dómsvaldsins í heild. Í huga Ungra jafnaðarmanna getur slík afstaða aldrei samræmst hugsjónum jafnaðarmanna um réttarríki og mikilvægi valddreifingar í samfélaginu.

Sérstaklega þykir Ungum jafnaðarmönnum forkastanlegt að forseti Alþingis, æðsti fulltrúi löggjafarvaldsins samkvæmt stjórnarskránni, skuli taka afstöðu gegn dómsvaldinu með þessum hætti. Því lýsir miðstjórn Ungra jafnaðarmanna vantrausti á forseta Alþingis, og krefst þess að þingmönnum sem fyrst verði veitt tækifæri til þess að kjósa sér nýjan forseta.

Ungir jafnaðarmenn harma að þessir þingmenn Samfylkingarinnar, auk sumra þingmanna Vinstri-Grænna, hafi látið blekkjast til að taka þátt í pólitískum skollaleik formanns Sjálfstæðisflokksins með ófyrirséðum afleiðingum fyrir stöðu ríkisstjórnarinnar og stöðu Landsdóms sem dómstóls. Ungir jafnaðarmenn lýsa fullkominni vanþóknun sinni á því dómgreindarleysi sem þingmennirnir, þ.m.t. tveir núverandi ráðherrar og fjórir fyrrverandi ráðherrar, hafa sýnt í þessu máli.

Eyjan greindi frá því fyrr í dag að vaxandi líkur séu á að vantrausttillaga verði borin upp á þingi gegn forseta Alþingis. Meðal annars er hafin söfnun undirskrifta meðal þingmanna í þessu skyni og hefur Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, forystu í því máli.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is