Vaxandi reiði innan VG. Ísak Harðarson gengur úr flokknum í mótmælaskyni
Vaxandi ólga og reiði er innan raða Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjölfar atkvæðagreiðslu vegna Landsdómsmálsins á föstudagskvöld. Líklegt er talið að flokkurinn sé á barmi klofnings og að til frekari tíðinda kunni að draga í vikunni.
Þráinn Bertelsson fjallar um ástandið innan flokksins og í ríkisstjórnarmeirihlutanum í pistli sem birtist á Eyjunni í dag. Í Silfri Egils í dag sagðist hann telja að leiðir hljóti að skilja milli einstakra þingmanna sem ekki nái saman í stórum málum og voru sérstaklega nefnd til sögunnar þau Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingkona.
Fjölmargir flokksmenn hafa lýst yfir sérstakri óánægju með framgöngu Ögmundar Jónassonar í málinu. Ísak Harðarson skáld hefur ritað Vinstri grænum opið bréf þar sem hann tilkynnir úrsögn sína úr flokknum með þessum orðum:
Ég segi mig hérmeð úr flokki Vinstri grænna vegna vonbrigða af völdum sundurlyndis þingmanna flokksins í Haarde-málinu. Vinsamlegast afskráið mig úr skrá félagsmanna flokksins nú þegar. Þótt VG hafi að einhverju leyti – amk frá sjónarhóli peninga- stofnana – staðið sig vel í tiltektinni eftir hrunið, finnst mér þið hafa brugðist hrapallega að öðru leyti, og ég hef ekki lengur trú á að VG þjóni framtíðarhags- munum íslensks almennings.
Með velvild,
Ísak Harðarson
Á vef Ögmundar Jónassonar birtist persónulegt bréf Ísaks til ráðherrans þar sem hann skýrir ákvörðun sína betur:
Kæri Ögmundur.
Eftir að hafa borið óskoraða virðingu fyrir þér í mörg ár (þú varst flokksstjórinn minn í unglingavinnunni forðum) og fundist sjónarmið okkar fara saman lengi, þá er það því miður ekki þannig lengur. Afstaða þín (og Guðfríðar) í Haarde-málinu er mér gersamlega óskiljanleg.
Þráinn Bertelsson fjallar um málið á Facebook-síðu sinni í dag og biður þar Ísak um að endurskoða afstöðu sína:
Til Ísaks Harðarsonar:
Kæra skáld, ég las úrsögn þína úr Vg á heimasíðu Ögmundar Jónassonar sem virðist hafa gengið fram af þér eins og fleiri félögum upp á síðkastið. Bið þig um að endurskoða þessa úrsögn þína, því að ef þú og fleiri góðir vinstri menn gefast upp á baráttunni bara vegna óskiljanlegra uppátækja Ögmundar og félaga – hver á þá að berjast áfram með okkur hinum í þingflokknum og í Vg?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
