Föstudagur 27.01.2012 - 10:41 - Ummæli ()

Guðmundur Guðmundsson: Fjárfesta þarf í landsliðinu. Árangur kostar peninga

Stórauka þarf framlög til íslenska handboltalandsliðsins. Ekki er sjálfgefið að Ísland muni ávallt eiga sterkt landslið ef ekki fylgir fjárstuðningur

„Menn verða að átta sig á því að ef þeir vilja eiga gott landslið þá þarf að fjárfesta í því. Allt annað er ekki mögulegt. Það er meira og minna allt undir á hverju móti. Það liggur stundum nánast þannig að ef við komumst ekki inn á næsta stórmót þá þurfi að loka HSÍ.“

Guðmundi Þ. Guðmundssyni, landsliðsþjálfara í handknattleik, finnst dapurlegt hve illa er staðið við bakið á handboltalandsliðinu í viðtali í Fréttablaðinu í dag. Leikmenn þess fái engar greiðslur fyrir leiki sína ólíkt því sem gerist hjá leikmönnum annarra landsliða.

„Leikmenn eru að nýta sinn frítíma til að spila á stórmótum. Það er ekki sjálfgefið og þess vegna er ég svo þakklátur. Mér finnst líka að þjóðin eigi að vera þakklát leikmönnunum sínum sem eru að fórna sér. Þeir gera þetta líka ótrúlega faglega þessir strákar og eru atvinnumenn fram í fingurgóma. Það gerir það líka þess virði að standa í þessu. Menn skulu líka ekki gleyma því að það er ekki sjálfgefið að þetta haldi áfram svona endalaust.“

„[...]Íslenska þjóðin vill árangur og er oft stolt af þessu liði. Menn verða líka að fara að gera upp við sig hvort þeir vilji virkilega eiga svona heimsklassalið eða ætla menn bara að slá sér á brjóst á mannamótum þegar landsliðið hefur staðið sig vel? Ég vil sjá meiri fjárfestingu inn í þetta lið ef menn á annað borð vilja eiga það. Landsliðsmenn annarra þjóða skilja það ekki og hafa margoft sagt við þá að þeir myndu ekki nenna þessu ef þeir fengju ekki almennilega greitt.“

Guðmundur segist þó afar sáttur við gengi landsliðsins á Evrópumótinu og segir litlu hafa mátt muna að liðið hefði komist mun lengra en raunin varð.

„Það má ekki gleyma því að við vorum án Alexanders Petersson allan milliriðilinn. Við vorum líka án eins besta varnarmanns liðsins, eins besta hraðaupphlaupsmannsins og eins besta sóknarmannsins. Við náum samt mjög fínum úrslitum og mér finnst margt jákvætt við það sem við vorum að gera á þessu móti.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is