Viðskipti Föstudagur 27.01.2012 - 13:30 - Ummæli ()

Verðlag hækkar umfram væntingar í janúar. Húsnæðisverð á uppleið

Á Íslandi er allt að hækka í verði.

Samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofunnar hækkaði vísitala neysluverðs (VNV) um 0,28% í janúar frá fyrri mánuði. Opinberar spár lágu á bilinu lækkun upp á 0,1% til hækkun upp á 0,1%.  Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka kemur fram að bankinn hafi reiknað með 0,1% hækkun milli mánaða. Er tólf mánaða verðbólga nú 6,5% en hún mældist 5,3% í desember, og hefur hún ekki verið meiri síðan í maí 2010.

Stærsti hluti hækkunar vísitölu neysluverðs í janúar á sér rót í hækkun gjaldskráa opinberra aðila, veitufyrirtækja og ýmissa annarra þjónustuaðila. Þannig hækkaði verð á opinberri þjónustu um 5,8% í janúar frá fyrri mánuði (vísitöluáhrif 0,45%). Þar af hækkuðu gjöld fyrir sorphirðu, holræsi og vatn um 12,6% milli mánaða (0,19%) og gjaldskrár orkuveitna fyrir rafmagn og hita hækkuðu um 4,4% (0,14%). Hækkun opinberra gjalda náði einnig til verðs á bensíni og díselolíu sem hækkaði um 5,2% milli mánaða (0,30%) og áfengis og tóbaks sem  hækkaði um 2,8% milli mánaða (0,10%). Af þeim 0,40% sem síðasttöldu liðirnir tveir lögðu til hækkunar á vísitölu neysluverðs milli mánaða lögðu því opinber gjöld á þessa liði til 0,16%. Eldsneyti hækkaði þó einnig vegna verðhækkunar erlendis og veikingar krónu.

Eins og ávallt í janúar, a.m.k. síðastliðin 5 ár, hækkaði mat- og drykkjavöruliður vísitölu neysluverðs umtalsvert. Þannig hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 0,92% (vísitöluáhrif 0,13%) milli mánaða og gætir hér m.a. árstíðarbundinna hækkana, auk áhrifa af veikingu krónunnar frá nóvemberbyrjun. Hvað fyrrnefnda áhrifaþáttinn varðar má nefna að verð á ávöxtum hækkaði um rúm 6,6% milli mánaða og verð á grænmeti um tæp 4,5% en þessi liðir hækka ávallt mikið í janúarmánuði. Hvað veikingu krónunnar varðar þá hækkuðu innfluttar matar- og drykkjarvörur um rúm 1,9% milli mánaða.

Það sem vegur á móti þessum miklu ofangreindu hækkunum nú í janúarmánuði eru útsöluáhrifin enda vetrarútsölur í fullum gangi í janúar. Þannig leiddu vetrarútsölur til þess að föt og skór lækkuðu um 10,3% í janúar frá fyrri mánuði (-0,61% áhrif í VNV). Húsgögn og heimilisbúnaður fóru líka á útsölu í janúar og lækkaði sá liður um 2,2% (-0,14% áhrif í VNV). Loks lækkuðu fargjöld í utanlandsflugi um 13,7% (-0,15% áhrif í VNV). Þrátt fyrir þessar miklu lækkanir er ljóst að þær hafi ekki dugað til þess að vísítala neysluverðs lækkaði í mánuðinum, líkt og í janúar síðustu tvö ár, enda er um verulegar hækkanir hjá hinu opinbera, að því er frá greinir í Morgunkorninu.

Húsnæðisverð hækkar hratt

Greining Íslandsbanka segir að íbúðaverð á landinu hafi hækkað um 0,5% í janúar frá fyrri mánuði. Verð íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,1%, verð sérbýla á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,1% en húsnæði á landsbyggðinni lækkaði hinsvegar um 2,8%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar sem birtar voru nú í morgun. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð á landinu öllu hækkað um 10,7% en hækkunartaktur húsnæðisverðs hefur nú verulega aukist síðustu mánuði  en fyrir ári, í ársbyrjun 2011 var hann  -0,6%. Að teknu tilliti til verðbólgu, þ.e. að raunvirði, nemur hækkun húsnæðis á landinu öllu undanfarna 12 mánuði 4,7% en svo hár hefur takturinn ekki  verið síðan í mars 2008. Það hefur því komið í ljós að viðsnúningurinn á íbúðamarkaði hefur verið mun hraðari en flestir bjuggust við. Ekki er útlit fyrir annað en að íbúðaverð haldi áfram að hækka á næstu misserum að því gefnu að batinn haldi áfram í efnahagsmálum hér á landi.

Verð íbúðarhúsnæðis hefur hækkað hér á landi mun meira undanfarið en víðast hvar í löndunum í kringum okkur.  Þegar horft er til Norðurlandanna er íbúðaverð þar að lækka að raunvirði allstaðar að Noregi undanskildum en þar hafði íbúðaverð hækkað um 7% að raunvirði  á þriðja ársfjórðungi síðasta árs miðað við sama fjórðung árið áður.  Bandaríski íbúðamarkaðurinn hefur enn ekki náð skýrum viðsnúningi  og sömu sögu er hægt að segja um íbúðamarkaðinn í Bretlandi.  Í Bandaríkjunum lækkaði íbúðaverð um tæp 2% að nafnvirði á síðasta ári og í Japan lækkaði húsnæðisverð um 3% á sama mælikvarða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is