Föstudagur 03.02.2012 - 07:42 - Ummæli ()

Búslóð og bíll en engar verðmætar vínbirgðir í leynikjallara Kaupþingsmanna

Gögn sýna að þeir félagar Steingrímur P. Kárason og Ingólfur Helgason keyptu miklar og verðmætar vínbirgðir. Ekki fundust þær á Smiðshöfða

Engin merkileg verðmæti fundust við húsleit í kjallara geymsluhúsnæðis tveggja háttsettra fyrrum stjórnenda Kaupþings banka, Ingólfs Helgasonar og Steingríms P. Kárasonar, þegar slitastjórn bankans fékk loks aðgang að húsnæðinu.

Hefur slitastjórn lengi reynt að komast að hvað þeir félagar geymdu í kjallara húsnæðis að Smiðshöfða í Reykjavík.

Eftir langa bið þar sem sýslumaðurinn í Reykjavík féllst ekki á að leyfa skoðun á húsnæðinu fóru menn á vegum slitastjórnarinnar loks inn í húsnæðið í fyrradag en þar fundust lítil verðmæti önnur en bifreið frá 2004 og gömul búslóð.

Lengi hefur leikið grunur á að í húsnæðinu væru geymdar verðmætar vínbirgðir sem slitastjórn hefur vitneskju um að þeir félagar hafi átt en verðmæti þess safns er talið vera um 300 milljónir króna.

Fréttablaðið segir frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is