Þriðjudagur 07.02.2012 - 21:15 - Ummæli ()

Lífeyrissjóðakerfið byggir á braski segir Ögmundur. Telur ekki þörf á að biðjast afsökunar

Lífeyrissjóðir eru í eðli sínu peningabraskarar eftir að lögum um þá var breytt árið 1997 segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, segir lífeyrissjóðakerfi landsins byggja á braski. Hann telur sig ekki þurfa að biðjast afsökunar á sínum þætti í gríðarlegu tapi þess sjóðs í aðdraganda hrunsins.

Ögmundur var gestur Kastljóssins þar sem hann var spurður um gríðarlegt tap lífeyrissjóða landsins við hrunið og ekki síður hans þátt en ráðherra var formaður stjórnar LSR árið 2007 og stjórnarmaður í kjölfarið. Hefur Ögmundur áður sagt að tap sjóðsins hafi ekki orðið á hans vakt sem stjórnarformaður heldur síðar. LSR tapaði yfir hundrað milljörðum króna í hruninu 2008.

Ráðherrann benti á að lög og reglur um opinbera lífeyrissjóði hafi breyst árið 1997 og þeim beinlínis gert að braska með peninga lífeyrisgreiðenda í kjölfarið.

„[...]  þegar búin var til A-deild sjóðsins í ársbyrjun 1997. Þá var ákveðið að sá sjóður, gagnstætt því sem verið hafði fram að því, yrði sjálfstæður sjóður á markaði sem var gert lögum samkvæmt að leita alltaf eftir hámarks ávöxtun. Þetta var bundið í lög. Það var einn maður á Alþingi sem andmælti þessu og það var ég.“

„Ég gerði grein fyrir atkvæði mínu og sagði að þetta væri stórhættulegt. Að setja lífeyrissjóð í þessa braskstöðu að leita alltaf eftir hámarks ávöxtun. [...] Á þessu byggði lífeyrissjóðskerfið og mín gagnrýni er að láta þá út á þennan markað og braska með peningana. En þegar menn halda því fram að þeir hafi átt annarra kosta völ innan þess lagaramma sem átti við þá er það bara rangt. Þegar spilaborgin Ísland svo hrundi þá urðu lífeyrissjóðirnir að sjálfsögðu fyrir miklum skakkaföllum.“

Aðspurður hvort hann skuldaði sjóðsfélögum LSR afsökunarbeiðni svaraði Ögmundur því til að hann ætlaði ekki að taka á sínar herðar syndir kapítalismans.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is