Miðvikudagur 08.02.2012 - 10:26 - Ummæli ()

Guðlaugur Þór: Allt tap lífeyrissjóðanna eftir hrun beint í fang skuldugra heimila

Með því að gera ekkert vegna verðtryggingar 2008 hefur tap lífeyrissjóðanna frá þeim tíma að stóru leyti fallið á heimilin að sögn Guðlaugs Þórs

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, ætti að hafa sig hægan í umræðunni um tap lífeyrissjóða landsins við hrunið að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns. Gagnrýnir hann Gylfa fyrir skrif þess síðarnefnda um að tap lífeyrissjóða hafi ekki verið svo ýkja mikið eftir allt saman.

Ástæða þess að ávöxtun sjóða landsins hefur lagast á ný eftir hrunið að sögn Guðlaugs er að stærstum hluta sú að hér er og hefur verðtrygging verið við lýði að því er fram kemur í pistli á Pressunni. Verðtrygging sem Gylfa Arnbjörnssyni og öðrum í sérstakri nefnd sem sett var á laggirnar í október 2008 fannst ekki tilefni til að taka úr sambandi þó sjaldan hefði verið eins stórt tilefni til og þá að sögn Guðlaugs.

Niðurstaða hópsins var að taka ekki á vanda lántakenda með verðtryggð lán. Síðan þá hefur verðtryggingin kostað lántakendur um það bil 200 milljarða króna. Þetta er þungur baggi fyrir heimilin í landinu og hefur átt sinn þátt í að skapa það ófremdarástand sem nú ríkir í fjármálum heimila landsins. Það er mitt mat að sama hvaða skoðanir fólk hefur á verðtryggingunni geti fáir mótmælt því að ef einhvern tímann var nauðsynlegt að taka hana úr sambandi, í það minnsta kosti tímabundið, þá var það í kjölfar vinnu Gylfa og sérfræðingahópsins.

Ákvörðun Gylfa og sérfræðingahópsins hafði það hins vegar í för með sér að hægt var að fela tap lífeyrissjóðanna þannig að það væri mun minna en raun bar vitni. Það má færa sannfærandi rök fyrir því að í þessari ákvörðunartöku hafi Gylfi ekki haft hagsmuni umbjóðenda sinna í ASÍ að leiðarljósi því hið raunverulega tap lífeyrissjóðanna færðist beint yfir á skuldug heimili í gegnum verðtrygginguna. Þau borga allt í boði Gylfa og Jóhönnu.

Í stað þess að gæta hagsmuna launafólks gerir Gylfi hvað hann getur til að koma þjóðinni inn í ESB. Hann er einn af fáum einstaklingum í Evrópu sem dásama evruna og er búinn að setja áróðursmaskínu ASÍ í að reyna að fegra hana eins mikið og kostur er. Í þeirri umræðu nefnir hann ekki útgjöld þeirra sem búa í ESB við að halda henni á lífi.

Það er algjör samhljómur á milli hans og Samfylkingarinnar þar sem þessi stjórnmálaöfl segja í fullri alvöru að ekkert sé hægt að gera í verðtryggingarmálum þjóðarinnar nema taka upp evru! Þetta er fullkominn fyrirsláttur. Ef formaður ASÍ og forsætisráðherra eru svona mikið á móti verðtryggingunni, af hverju lögðu þessir aðilar ekki til að kippa henni tímabundið úr sambandi á þeim tímapunkti sem það hefði skilað launþegum þessa lands raunverulegum kjarabótum?


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is