Sunnudagur 12.02.2012 - 16:03 - Ummæli ()

Jónsi og Greta Salóme ættu að syngja á íslensku í Baku: Fljúgum upp úr forkeppninni

Jónsi og Gréta Salóme verða fulltrúar Íslands í Eurovision þetta árið.

„Helst á að syngja lagið á íslensku áfram. Það væri langmest töff,“ segir Eurovision spekingurinn Dr. Gunni um sigurlag þeirra Jónsa og Gretu Salóme í forkepppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Mundu eftir mér heitir sigurlagið og var þeim Jónsa og Gretu Salóme vel fagnað í Eldborgarsalnum í Hörpu þegar úrslitin voru kunngjörð.

Lagið fellur Eurovision aðdáendum í Evrópu vel í geð, ef marka má umræður á vefsíðunni esctoday.com sem helguð er keppninni. Hástemmd lýsingarorð eru notuð um lagið og telja flestir að lagið eigi góða möguleika í lokakeppninni sem fram fer í Baku í Aserbaídsjan.

Dr. Gunni er sömuleiðis bjartsýnn á gott gengi íslenska framlagsins i í Baku. Á bloggi sínu á Eyjunni segir hann:

„Nú er um að gera að halda í hráa myrka víkingafílinginn í laginu. Taka  jarðarfararstemminguna alla leið. Alls ekki að poppa það upp né létta. Pétur Örn má alls ekki raka sig og hinn karlinn þarf að safna meira skeggi. Helst á að syngja lagið á íslensku áfram. Það væri langmest töff. Lagið flýgur svo eflaust upp úr forkeppninni og lendir í 2-8 sæti.“

Doktorinn bendir einnig á að Greta Salóme er dóttir Kristínar Lillendahl sem söng meðal annars Ég ætla að mála allan heiminn sællar minningar. Hún eigi því ekki langt að sækja hæfileikana.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is