Kanína upp úr hatti? Krefst svara við hver eigi að borga skuldaniðurfellingar

Þeirri spurningu er ósvarað segir Sighvatur Björgvinsson hverjir eigi að greiða hugsanlega skuldaniðurfellingar heimilanna
Þeir flokkar sem hafa það á stefnuskránni að lækka skuldir heimila landsins um milljarðatugi verða að svara þeirri spurningu hverjir eiga að borga fyrir það segir Sighvatur Björgvinsson, fyrrum ráðherra. Slíkt er ekki dregið sísona upp úr hatti.
Sighvatur Björgvinsson var gestur í Silfri Egils á sunnudaginn þar sem hann gerði að umtalsefni þá flokka og persónur sem kalla eftir miklum skuldaniðurfellingum heimila landsins. Sagði hann fólk spila á strengi pópulisma með því að krefjast mikilla niðurfellinga án þess að tiltaka hvaðan peningarnir til þess eigi að koma.
„Það er til dæmis ekki hægt að draga skuldaniðurfellingu heimila upp úr hatti. Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis. Ekki þessi hádegisverður fremur heldur en aðrir. Og þeir sem leggja það til að skuldir heimilanna verði afskrifaðar um eitthvað tiltekið hlutfall verða að svara þeirri spurningu hverjir eigi að borga.“
„Eru það lífeyrissjóðirnir sem eiga að greiða þetta og lækkar þá lífeyrir gamla fólksins og afnema verðtryggingu lífeyris? Eru það skattborgarar sem eiga að borga þetta með hærri sköttum og meiri niðurskurði. Eða eru menn ennþá að láta sér detta í hug að erlendir kröfuhafar bankanna muni taka þetta að sér sem hafa þegar tapað milli sjö og tíu þúsund milljarða króna á Íslandi.“
„Í 72. grein stjórnarskrárinnar eru ákvæði um eignarrétt. Erlendir kröfuhafar eiga eignarrétt á sínum kröfum. Lífeyrissjóðir og bankar og aðrir slíkir sem hafa lánað hafa eignarrétt af þeim skuldbindingum sem þar er stofnað til. Þú getur ekki afnumið þetta nema í sátt við viðkomandi aðila nema afnema þetta með lögum og þá þarf að borga fullar bætur.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is