Áskoranir til forsetans fjara út. Rúmlega tólf prósent vilja Ólaf áfram á Bessastöðum

Forseti Íslands nýtur aðeins stuðnings tólf prósenta miðað við þann fjölda sem skorar á hann til áframhaldandi setu á Bessastöðum
Söfnun áskorana á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, hefur verulega fjarað út síðustu dagana og undanfarið lítið bæst í hóp þeirra sem vilja hann áfram á forsetastóli næstu fjögur árin. Innan við 30 þúsund hafa skráð sig á lista áskorenda.
Miðað við að tæplega 240 þúsund Íslendingar séu á kjörskrá þýðir þetta að Ólafur Ragnar Grímsson nýtur stuðnings rúmlega tólf prósenta fólks í landinu. Þá á eftir að ganga úr skugga um að allar undirskriftir á umræddum lista séu réttar en töluvert hefur verið gagnrýnt að hver sem er geti þar skorað á forsetann undir hvaða nafni sem er.
Eyjubloggarinn Gísli Baldvinsson bendir á að þetta sé töluvert undir þeim 40 þúsund undirskriftum sem stefnt var að af hálfu stuðningsmanna Ólafs Ragnars. Njóti forsetinn ekki meiri stuðnings eftir sextán ár í embættinu sé betur heima setið en af stað farið.
Reyndar sýnir nýleg skoðanakönnun Fréttablaðsins mun meiri stuðning við Ólaf Ragnar en fjöldi áskorenda gefur til kynna. Samkvæmt henni vilja 54 prósent aðspurðra að Ólafur bjóði sig fram að nýju.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is