Þriðjudagur 14.02.2012 - 14:51 - Ummæli ()

Íranir kvarta yfir „landlægu kynþátta- og útlendingahatri“ á Íslandi

Tugir athugasemdir voru gerðar við stöðu mannréttindamála á Íslandi.

Íranir hafa lýst yfir áhyggjum sínum af „landlægu kynþátta- og útlendingahatri“ á Íslandi. Þetta er meðal tuga athugasemda sem gerðar voru við ástand mannréttindamála á Íslandi á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Í reglubundinni yfirferð Mannréttindaráðs SÞ var Íslendingum almennt hrósað fyrir stöðu mannréttindamála, einkum og sér í lagi á sviði jafnréttismála.

En það er víða pottur brotinn, meðal annars á sviði fangelsismála, vægum dómum og fáum kærum í kynferðisbrotamálum, kynbundnu launamisrétti, trúfrelsismálum og síðast en ekki síst seinagangi við að staðfesta alþjóðlega mannréttindasáttmála.

Meðal ríkja sem lýstu áhyggjum sínum af mannréttindum á Íslandi voru Bandaríkin, Bretland, þrjú Norðurlandanna, Ísrael, Afganistan og Íran. Þrjú síðastnefndu ríkin hafa margsinnis verið gagnrýnd á alþjóðvettvangi fyrir stöðu mannréttindamála.

Þannig gagnrýndu Bretar, Bandaríkjamenn og Ungverjar sérstaklega launamun kynjanna og Ástralir og Norðmenn voru á meðal ríkja sem lýstu yfir áhyggjum af vægum dómum í kynferðisbrotamálum. Segir í gagnrýni þeirra að vægir dómar virka letjandi á konur að kæra afbrot til yfirvalda.

Slæmt ástand fangelsa var mjög gagnrýnt. Annars vegar að vistaðir væru ungir og gamlir saman og hins vegar að dæmdir fangar deildu plássi með þeim sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald. Íranir tóku sérstaklega fram að íslensk fangelsi væru léleg.

Spánverjar lögðu til breytingu á stjórnarskrá vegna ákvæðis um að þjóðkirkjan nyti sérstaks stuðnings og verndar ríkisins og Svíar lýstu yfir áhyggjum af því að prestar kenndu börnum kristna trú, oft og tíðum án samþykkis foreldra.

Mörg ríki lýstu yfir áhyggjum af málefnum útlendinga og innflytjenda. Íranir lýstu áhyggjum yfir landlægu kynþátta- og útlendingahatri á Íslandi og Gana og Slóvakía telja þörf á að efna til herferðar til að auka vitund um og taka í lög sáttmála um að útrýma kynþáttahatri og mismunun.

En það kom ekki bara fram gagnrýni. Íslendingum er sérstaklega hrósað fyrir atriði eins og mikla þátttöku kvenna í opinberu lífi, aðgengi almennings að samningu nýrrar stjórnarskrár, afstöðu til hjónabanda samkynhneigðra og skipan Jóhönnu Sigurðardóttur fyrstra kvenna í stöðu forsætisráðherra.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is