Þriðjudagur 14.02.2012 - 13:00 - Ummæli ()

Vigdís: Hélt að Össur væri byrjaður á næturbloggunum aftur – Niðurlægjandi að tapa orrustu við konu

Vigdís segist standa sem klettur undir vindhöggum Össurar.

„Frá því ég tók sæti sem þingmaður þá hef ég fundið að ég hef verið mikil ógn við Össur og Samfylkinguna,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks. Hún segir Össur eiga í erfiðleikum með að viðurkenna að ESB draumurinn sé orðinn að martröð.

Eins og fram hefur komið á Eyjunni svaraði Össur því til á þingi að fyrirspurn Vigdísar um starfsemi Evrópustofu hafi verið byggð á misskilningi og vísaði um leið í Íslandsklukkuna. Siv Friðleifsdóttir tók svar Össurs illa upp og sagði það tilraun til að gera grín að og niðurlægja Vigdísi.

Svar Össurar kemur þó Vigdísi ekki á óvart, enda ýmsu vön í samskiptum sínum við Össur.

Ég er sá þingmaður sem hef beitt mér hvað mest í málefnalegri gagnrýni á Evrópusambandið og aðlögunarferlið. Mig minnir að þetta sé í annað sinn sem Össur svarar skriflegri fyrirspurn frá mér út í hött – fyrir utan þá orðastaði sem við höfum átt í ræðustól þingsins og hafa oft verið snarpir. Í þeim umræðum hefur Össur líka oft svarað út í hött, snúið út úr, reynt að vera fyndinn og það sem verst er, þá veit hann stundum ekki nægilega mikið um þau málefni sem hann er spurður að sem ráðherra,

segir Vigdís og vísar til þess að hann hafi ekki vitað að 596 milljónir króna úr IPA styrkjakerfinu hafi ratað inn í fjárlög ársins 2012.

Þetta svar Össurar segir meira um hann sem persónu en mig. Honum er vorkunn og ef ég á að segja alveg eins og er, að þegar ég las svarið hélt ég að hann væri byrjaður á næturbloggunum á nýjan leik. Svarið ber þess merki. Þetta er aumt yfirklór manns sem veit að hann hefur tapað orrustunni. Og að tapa orrustu við konu er niðurlægjandi fyrir karlmenn. Það les ég úr svarinu og framkomu hans við mig í þinginu.

Vigdís segir að ESB draumurinn sé orðinn að martröð og verði aldrei að veruleika. Það viti Össur þótt hann geti ekki viðurkennt það.

Hann hefur greinilega ákveðið að sparka í sem flesta á niðurleiðinni. Ég stend sem klettur undir þessum marklausu vindhöggum Össurar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is