Verðtryggðu lánin verða næsta baráttumálið: Ég er 39 ára og allir vinir mínir eru tæknilega gjaldþrota
Eftir gengslánsdóm Hæstaréttar í dag eykst enn misvægið á milli þeirra sem tóku gengislán og verðtryggð lán. Þingmaður segir að næsta baráttumál verði að fá leiðréttingu á slíkum lánum.
Ég er ekkert hætt. Nú gerum við kröfu á sambærilega leiðréttingu á verðtryggðum lánum. Það er þarna misvægi á milli og mér finnst ekki spurning um að nú þarf að klára dæmið.
segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar við Eyjuna, en þingmenn Hreyfingarinnar voru þeir einu sem greiddu atkvæði gegn umdeildum lögum sem Hæstiréttur hefur nú úrskurðað að ákvæði þeirra stæðust ekki.
Margrét bendir á að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 37 prósent í maí frá því í ársbyrjun 2008.
Það er sá punktur sem oft er miðað við. Það er ekki óeðlilegt að tjóninu verði deilt og miðað verði við einhvers konar vikmörk í verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Mér þætti ekki óeðlilegt að lánþegar tækju á sig 10 prósent.
segir Margrét og brýnir hversu mikilvægt hagsmunamál er að ræða.
Ég er 39 ára gömul og það eru allir vinir mínir meira og minna tæknilega gjaldþrota. Það sjá allir að þetta gengur ekki lengur.
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bendir á Facebook síðu sinni á að eftir dóm Hæstaréttar sé misvægi milli verðtryggðra lána og gengislána orðið mikið, og að þeir sem tóku fyrrnefndu lánin hafi enga leiðréttingu fengið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is