Hagsmunasamtök í sæng með verkalýðsfélögum? Áhugi að mynda öflugri samtök launafólks

Verða Hagsmunasamtök heimilanna að öflugum samtökum launafólks í framtíðinni? Það er ein hugmynda stjórnarmanna þeirra samtaka
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna íhugar að bjóða verkalýðsfélögum landsins að ganga til liðs við samtökin og mynda saman ný og öflug heildarsamtök launafólks. Ætlar stjórnin að láta fara fram könnun meðal félagsmanna sinna um framtíð samtakanna.
Þrír stjórnarmenn, Andrea J. Ólafsdóttir, Friðrik Ó. Friðriksson og Þórður Björn Sigurðsson, rita grein um málið þar sem fram kemur vilji þeirra til að gera Hagsmunasamtökin að enn stærra afli en það hefur verið og það í samvinnu við verkalýðsfélög.
Með slíkri samvinnu og stofnun nýrra heildarsamtaka launafólks yrði hægt að samþætta lánskjarabaráttu í störf verkalýðsfélaga og ekki er vanþörf á því að mati stjórnarmanna. Verkalýðshreyfingin hafi ekki viljað taka þátt í kjarabaráttu Hagsmunasamtakanna nema að takmörkuðu leyti og afstaða Alþýðusambands Íslands í mörgum málum sé óskiljanleg.
Á síðasta áratug var séreignarlífeyrir innleiddur, iðgjöld í lífeyrissjóði hækkuð og lögum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða breytt. Stærð sjóðanna fjórfaldaðist ásamt skuldum heimilanna. Ítrekað kom Alþýðusamband Íslands þó fram og sagðist hafa varið kaupmátt, þrátt fyrir aukna atvinnuþátttöku frá liðnum áratug. ASÍ hefur verið gagnrýnt fyrir að vera ólýðræðislegt. Forseti ASÍ er ekki kjörinn í allsherjarkosningu heldur hafa fulltrúar, handgengnir forystunni, atkvæðisrétt. Þá hefur ASÍ lagst gegn því að stjórnir lífeyrissjóða verði kosnar beint af sjóðsfélögum. Eins hefur ASÍ viljað halda fulltrúum samtaka atvinnurekenda í stjórnum sjóðanna. Afstaða ASÍ er óskiljanleg.
Þá segja þremenningarnir að líklega hefðu samtök þeirra aldrei orðið til ef ekki væri fyrir að forseti Alþýðusambandsins hafi lagst gegn frystingu vísitölunnar haustið 2008.
Sú hugmynd hefur kviknað hjá stjórn HH að bjóða verkalýðsfélögum að ganga til liðs við HH og mynda saman ný heildarsamtök launafólks. Nýja fjöldahreyfingu, ný regnhlífarsamtök verkalýðsfélaga sem ekki myndi skilja lánakjör útundan í baráttunni fyrir bættum hag félagsmanna heldur samþætta lánskjarabaráttuna inn í starf verkalýðshreyfingarinnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is