Mánudagur 20.02.2012 - 15:15 - Ummæli ()

ESB verktakar vinna skattfrjálst á Íslandi og greiða enga tolla – Veikir samkeppnisstöðu Íslendinga

Verktakar sem starfa við verkefni úr sjóði ESB þurfa ekki að greiða skatt hér á landi og allar þær vörur sem þeir flytja inn eru undanskildar aðflutningsgjöldum. Óttast er að þetta kunni að veikja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.

Fyrir Alþingi liggur frumarp til laga vegna svokallaðra IPA styrkja úr sjóði sem fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB.

Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að ESB verktakar – þeir aðilar sem hér starfa í beinum tengslum við styrkina – verði undanþegnir skattskyldu. Aðflutningsgjöld á vörum sem ESB verktakar flytja inn verða felld niður og ESB verktakar verða undanþegnir virðisaukaskatti, tekjuskatti, útsvari og staðgreiðslu.

Félag löggiltra endurskoðenda hefur skilað inn umsögn við frumvarpið þar sem lýst er áhyggjum yfir því að það kunni að veikja samkeppnisstöðu innlendra aðila gagvart aðilum af EES svæðinu. Frumvarpið sé til þess fallið að ESB verktakar, hvort sem þeir eru íslenskir eða ekki, kjósi frekar að kaupa vöru og þjónustu erlendis frá.

Ef ESB-verktakinn kaupir vöruna hér á landi þá er eingöngu virðisauki endurgreiddur eða hann talinn til innskatts. Með þessu myndast ójöfnuður milli innfluttra vara og vara sem keyptar eru af íslenskum aðilum sem nemur aðflutningsgjöldum. Til þess að gera ESB-verktakann eins settan hvort sem hann flytur vöru inn sjálfur eða kaupir hana af íslenskum aðila þá þyrfti hann að eiga rétt á að fá toll, vörugjöld og önnur gjöld eftir atvikum endurgreidd við kaup hér landi,

segir í umsögninni. Enn fremur er bent á að það geti verið fjárhagslegur hvati að ráða fremur erlenda aðila en innlenda sem ESB-verktaka þar sem erlendi aðilinn þarf ekki að greiða tekjuskatt af sínum tekjum, líkt og sá innlendi þarf að gera.

Ekki verður séð af þessu frumvarpi að fylgt sé þeirri kröfu að IPA styrkir skuli renna óskiptir til verkefnisins, þ.e. undanþegnir öllum sköttum, þar sem innlendum aðilum er sinna verkefni af þessum toga er gert að greiða tolla og vörugjöld (af vörum sem þeir flytja ekki sjálfir inn) og tekjuskatt. Slíkt veikir samkeppnisstöðu innlendra aðila.

Samband íslenskra sveitarfélaga fagnar hins vegar frumvarpinu. Í umsögn þess segir að fyrir liggi að hluti IPA aðstoðarinnar verður veittur til byggðaverkefna og íslensk sveitarfélög fái þar með tækifæri til að taka þátt ferlinu.

Bændasamtökin og LÍÚ mæla gegn frumvarpinu, bæði með þeim rökum að um óásættanlega aðlögun að stjórnsýslu ESB er að ræða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is