Grikkjum bjargað öðru sinni. Miklar afskriftir og stór lán eiga að hjálpa landinu að rísa

Tekist hefur aftur að bjarga Grikkjum frá falli sem jafnvel hefði þýdd brottför úr evrusamstarfinu. En björgunarpakkann þurfa stjórnvöld á evrusvæðinu öll að samþykkja
Eftir þrettán klukkustunda stanslausan fund grískra ráðamanna með ráðherrum evrusvæðisins náðist loks fyrr í morgun að afgreiða björgunarpakka til handa Grikkjum sem talið er að nægi til að landið rísi á ný. Er þetta í annað skipti á skömmum tíma sem Grikklandi er bjargað af ystu nöf.
Björgunarpakkinn sem um ræðir felur í sér að Evruríkin afskrifa 107 milljarða evra af skuldum Grikklands en að auki dæla ríkin 130 milljörðum evra beint til gríska ríkisins. Þessi upphæð nægir til að Grikkir geti í framhaldinu notið aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en er jafnframt talinn vera dýrasti björgunarpakki sögunnar.
Tók evran kipp upp á við á mörkuðum í Asíu strax og fregnir bárust af því að samkomulag hefði tekist en þó verða öll löndin í evrusamstarfinu að samþykkja pakkann formlega áður en málið verður um garð gengið. Að sama skapi verða Grikkir að beygja sig undir verulegt eftirlit utanaðkomandi aðila með ríkisfjármálunum og töluvert þarf enn að skera niður í landinu til að ná tökum á hallarekstri ríkisins.
Fjármálaráðherra Þýskalands, Wolfgang Schauble, segir við Reuters að hann sé bjartsýnn á að evruþjóðirnar samþykki aðgerðirnar til bjargar Grikklandi sem hefðu að líkindum lent í greiðslufalli strax í næsta mánuði þegar ríkisskuldabréf koma á gjalddaga.
Þá er alls óvíst hvort stjórnvöldum í Grikklandi tekst til með frekari aðhaldsaðgerðir en ein stjórn hefur þegar fallið vegna niðurskurðar og mótmæli og óeirðir hafa verið algengar í grískum borgum. Telja stjórnmálaskýrendur augljóst að þau mótmæli haldi áfram meðan skera þarf meira og meira niður.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is