Föstudagur 02.03.2012 - 15:19 - Ummæli ()

Baldur kærir dóm Hæstaréttar til Mannréttindadómstóls Evrópu

Baldur Guðlaugsson ásamt lögmanni sínum Karli Axelssyni.

Baldur Guðlaugsson ætlar að kæra dóm Hæstaréttar til Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann telur að brotið hafi verið á sér í veigamiklum atriðum.

Baldur var á dögunum dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi. Hann hefur nú falið LEX lögmannsstofu að senda kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu.

Í tilkynningu Lex segir að brotið hafi verið gegn rétti Baldurs þar sem hann var látinn senda endurtekinni málsmeðferð. FME hafði tilkynnt honum að rannsókn málsins væri lokið, en hún var síðar tekin upp og hann ákærður.

Í öðrulagi hafi réttur Baldurs til réttlátrar málsmeðferðar ekki verið virtur þar sem hann var sakfelldur fyrir annað en hann var ákærður fyrir. Baldur hafi verið ákærður fyrir að hafa verið annar innherji í skilningi laga, en sakfelldur fyrir að hafa verið tímabundinn innherji.

Þá hafi réttur Baldurs til réttlátrar málsmeðferðar ekki verið virðtur þar sem Hæstiréttur tók ekki afstöðu til veigamikilla atriða í vörn hans. Meðal annars þær grundvallarstaðreyndir að hvorki Landsbankinn né FME töldu þær upplýsingar sem Baldur bjó yfir vera innherjaupplýsingar.

Í fjórða lagi er bent á að Baldur hafi ekki notið grundvallarmannréttinda við málsmeðferðina, þar eð sönnunarbyrði hans hafi í reynd verið snúið við. Það er, hann hafi ekki verið saklaus uns sekt hans var sönnuð.

Loks er á það bent að verulegur vafi hafi leikið á því að mál Baldurs hafi í raun notið óvilhallrar meðferðar fyrir dómi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is