Mánudagur 05.03.2012 - 17:00 - Ummæli ()

Innheimta minniháttar skuldar tilefnið – Skil ekki hvernig svona getur gerst, segir lögmaður

„Auðvitað skilur maður það ekki og maður veltir fyrir sér hvernig þetta getur gerst um hábjartan dag, án nokkurs fyrirvara eða försögu,‟ segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands og lögmaður hjá Lagastoð. Tilefni árásarinnar var innheimta minniháttar skuldar

Karlmaður á fertugsaldri er í yfirheyrslu hjá lögreglu eftir að hann gekk inn á skrifstofu Lagastoðar í Lágmúla og stakk framkvæmdastjóra lögmannstofunnar með hnífi. Öðrum starfsmanni, Guðna Bergssyni, tókst að yfirbuga árásarmanninn og slasaðist hann lítillega.

Ástand framkvæmdastjórans er alvarlegt og gekkst hann undir aðgerð á Landspítalanum. Honum er haldið sofandi í öndunarvél.

Í tilkynningu lögreglu, sem send var út á sjötta tímanum, segir:

Svo virðist sem innheimta minniháttar skuldar hafi verið tilefni líkamsárásar á lögmannsstofu í austurborginni í morgun. Karl á fertugsaldri var handtekinn á vettvangi en sá hafði veitt tveimur starfsmönnum lögmannsstofunnar áverka með eggvopni. Árásarmaðurinn var yfirheyrður hjá lögreglu í dag en maðurinn var hvorki undir áhrifum áfengis né fíkniefna þegar hann var handtekinn. Engin fyrri samskipti höfðu átt sér stað á milli árásarmannsins og þess sem fyrir árásinni varð en annar starfsmaður lögmannsstofunnar var stunginn þegar hann kom samstarfsfélaga sínum til hjálpar. Lögð verður fram krafa um gæsluvarðhald yfir árásarmanninum á morgun en hann kom vopnaður hnífi á lögmannsstofuna.

Brynjar, sem sjálfur var ekki á staðnum þegar þetta gerðist, segir að maðurinn hafi komið inn og viljað hitta lögmann eða annan starfsmann. Það næsta sem fólk vissi var að maðurinn hafði ráðist á framkvæmdastjórann. Enginn á lögmannsstofunni kannaðist við manninn.

Þetta er auðvitað mikið áfall. Auðvitað skilur maður það ekki og maður veltir fyrir sér hvernig þetta getur gerst um hábjartan dag, án nokkurs fyrirvara eða forsögu eða að menn hafi nokkurn skilning á þessu.

sagði Brynjar við fjölmiðla í dag. Hann vill ekki draga of miklar ályktanir um tildrög árásarinnar að svo stöddu.

En við vitum alveg hvernig ástandið er í samfélaginu, hvort þetta sé afleiðing af því eða hvað. Alla vega þurfum við að velta okkur fyrir því hvernig þetta getur gerst af því að þetta er mjög óvenjulegt og hálf óskiljanlegt.

Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir árásarmanninum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is