Þriðjudagur 06.03.2012 - 07:50 - Ummæli ()

Alvarleg líkamsárás á lögmann ófyrirgefanleg en alls ekki óvænt segir Marinó

Árás á lögmann í gær kom Marinó G. Njálssyni ekki á óvart með tilliti til hve lögmenn margir hafi gengið hart fram gegn fólki eftir hrunið

„Þetta kom ekki svona eins og þruma úr heiðskýru lofti. Nei, óveðursskýin höfðu verið að hrúgast upp í mjög, mjög langan tíma. Ögranir fjármálafyrirtækjanna gagnvart lántökum voru að birtast lántökum á hverjum degi.“

Marinó G. Njálsson, ráðgjafi og fyrrum stjórnarmaður Hagsmunasamtaka heimilanna, telur ekki að alvarleg líkamsárás á lögmann á skrifstofu sinni í gær hafi verið sérstaklega óvænt eins og lögmenn margir hafa látið hafa eftir sér í kjölfarið. Fjöldi fólks hafi eftir hrunið óskað eftir við lögmenn og innheimtufyrirtæki að þeir sýni málum þeirra skilning, manngæsku og auðmýkt. Lítið hafi verið hlustað.

Með þessu er Marinó ekki að verja árásina á neinn hátt en bendir á að á síðustu fjögur árin hafi þúsundir lántakenda verið í heljargreipum fjármálafyrirtækja sem mörg hver hafi gengið hart fram og jafnvel lamið niður þá sem reynt hafi að semja um sín mál.

Vörslusviptingar, nauðungarsölur, fjárnám, stefnur, gjaldþrotaúrskurðir, lagaklækir, lagaflækjum, vikið sér undan að semja, neitað að viðurkenna hæstaréttardóma. Lántakar eru búnir að vera í heljargreipum fjármálafyrirtækjanna frá því í mars 2008. Jafnvel þeir sem voru að reyna að semja voru lamdir niður í svaðið vegna þess að fjármálafyrirtækin og innheimtulögfræðingar þeirra gátu komist upp með það.

Ísland er búið að breytast svo oft á undanförnum 4 árum, að ég er hættur að hafa tölu á því. Nær undantekningarlaust hafa lántakar verið þolendur þeirra breytinga. Þeir voru það líka í dag, þar sem héðan í frá verður hver einasti lántaki talin vera ógn við líf og heilsu gerendanna.

Margoft er búið að biðja fjármálafyrirtækin og innheimtulögfræðinga þeirra um að sýna skilning, manngæsku og auðmýkt. Því miður hafa þessir aðilar ekki hlustað nægilega vel. Já, Ísland breyttist í dag, en mun sú breyting kalla fram skilning, manngæsku og auðmýkt eða munu fjármálafyrirtækin og innheimtulögfræðingar forherðast. Um það er spurt víða í þjóðfélaginu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is