Björgólfur Guðmundsson í Landsdómi – Fólk vildi eiga viðskipti við okkur (bein textalýsing)
Björgólfur Guðmundsson, fyrrum formaður bankaráðs Landsbankans, hefur komið sér fyrir í Þjóðmenningarhúsinu til að bera vitni í Landsdómsmálinu gegn Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra.
Þetta er búið að vera langur og strangur dagur í Landsdómi, en Björgólfur er síðasta vitnið af sjö sem komið hafa fyrir dóminn í dag.
Áætlað er að skýrslutakan yfir Björgólfi taki um 45 mínútur.
Vitnaleiðslum lýkur á morgun og málflutningur verður svo á fimmtudag og föstudag.
Bein textalýsing (Uppfærið síðuna)
Björgólfur er sestur í stólinn. Hann er í jakkafötum með „trademark“ bindishnútinn sinn. Sigurjón skildi ekki eftir mikið vatn handa honum.
Björgólfur verður vonandi krafinn skýringa á því hvers vegna West Ham United keypti Freddie Ljungberg og Lucas Neill og greiddi þeim himinhá laun.
Sigríður byrjar að spyrja fyrir hönd ákæruvaldsins. Björgólfur segir líkt og Halldór og Sigurjón fyrr í dag að nær ógerlegt hafi verið að selja eignir bankans á þessum tíma. Það hafi vissulega komið til skoðunar, einkum erlend fyrirtæki sem bankinn átti. Ekki reyndi á það þar sem ekki hefði fengist ásættanlegt verð.
Björgólfur segir að bankaráðið hafi ekki verið „miklir gerendur“. Það hafi spurt spurninga og stjórnendur svarað þeim.
Björgólfur segir að Credit Suisse og Deutsche Bank hafi verið fengnir til að meta sameiningu á Landsbankanum, Straumi og Glitni. Í júlí komu fram hugmyndir sem hægt var að vinna eftir, en það hafi verið stoppað þangað til í lok ágúst. Í ljós kom að þetta var ekki hægt án stuðnings stjórnvalda.
Björgólfur segir að það hafi verið skylda bankans að vinna málið sjálfur. „Ég veit ekki hvað ríkisvaldið átti að gera annað en að fylgjast með.“
Ekki kom til þrýstingur af hálfu stjórnvalda að flytja bankann úr landi.
Björgólfur telur að það hafi verið eignir á bak við öll innlán á Icesave -reikningunum. Landsbankinn hafi verið í samskiptum við fjármálaeftirlit í 7 löndum.
Mikið til endurtekið efni frá fyrri yfirheyrslum. Sömu spurningar, svipuð svör. Engar spurningar um West Ham ennþá.
Björgólfur segir að það hafi verið almennar umræður um að Icesave reikningarnir voru vel uppbyggt kerfi. Það hafi til að mynda staðist ítarlega skoðun hollenskra yfirvalda. „Það er mikill misskilningur að halda við höfum náð svona langt að því að við vorum með hæstu vextina,“ segir Björgólfur sem telur að orðspor bankans í Bretlandi hafi verið gott, ekki síst fyrir tilstilli Heritable bankans. „Fólk vildi eiga viðskipti við okkur“.
Björgólfur segir að menn verði að átta sig á því að Bretland er ekkert öðruvísi en Ísland að því leyti að keppinautar notfæra sér blöðin til að koma höggi á andstæðinginn. Það hafi gerst í Bretlandi með Icesave reikningana. Málið hafi orðið pólitískt þegar fyrirspurn kom á breska þinginu um reikningana.
Hann segir það skrýtið hafi alltaf svarað tilburðum Landsbankans til að flytja Icesave yfir í dótturfélag með hertum skilyrðum. Hann segist ekki vita hvað stjórnvöld gátu gert í þessum efnum.
Björgólfur hefur lokið máli sínu og dagskráin er tæmd. Vitnaleiðslur halda áfram í fyrramálið klukkan 9. Dagskráin á morgun er sem hér segir:
09:00 Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabanka Íslands
11:00 Jón Þorsteinn Oddleifsson, fyrrum starfsmaður Landsbankans
11:30 Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra.
13:00 Árni M. Mathiesen, fyrrum ráðherra
14:15 Skýrslutaka af Geir H. Haarde heldur áfram.
Eyjan verður að sjálfsögðu með beina textalýsingu á morgun, líkt og fyrri daga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is