Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna samruna Íslandsbanka og Byrs staðfest

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að heimila samruna Íslandsbanka og Byrs.
Í október 2011 tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun um að heimila samruna Íslandsbanka og Byrs. Þrátt fyrir sterkar vísbendingar um að samruninn mundi auka skaðlega fákeppni var fallist á þau sjónarmið Íslandsbanka og Byrs að vegna reglna samkeppnisréttar um fyrirtæki á fallanda fæti (e. failing firm defence) ætti að leyfa samrunann. Var í því sambandi vísað til alvarlegrar stöðu Byrs.
Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins var sú að fjárhagsstaða Byrs hafi verið mjög slæm og raunhæfir möguleikar á annarri sölu en til Íslandsbanka hafi ekki verið fyrir hendi. Þá skiptir umtalsverðu máli að upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu sýndu að ef þessi samruni gengi ekki eftir myndi stofnunin beita heimildum sínum og færa inn- og útlán Byrs til einhvers stóru viðskiptabankanna. Voru skilyrði um fyrirtæki á fallanda fæti uppfyllt og Samkeppniseftirlitið hafði því ekki heimildir að lögum til þess að hafa frekari afskipti af samrunanum.
MP banki kærði þessa ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Í úrskurði sínum í dag kemst áfrýjunarnefnd samkeppnismála hins vegar að þeirri niðurstöðu að sýnt hafi verið fram á það að sjónarmið um fyrirtæki á fallanda fæti eigi við í málinu og staðfesti nefndin því ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is