Björgólfur Thor fær 2,4 milljarða frá Róberti en getur ekki borgað honum 6 milljarða
Róberti Wessman, fyrrum forstjóra Actavis, hefur verið gert að greiða eignarhaldsfélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar 2,4 milljarða króna vegna láns sem tekið var árið 2005. Félög Björgólfs þurfa hins vegar að greiða Róberti 6 milljarða króna, en þau félög munu vera eignalaus að sögn Björgólfs.
Þetta er niðurstaða tveggja dómsmála í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þau snérust annars vegar um annars vegar um árangursþóknun sem Róbert taldi sig eiga inni hjá félögum Björgólfs frá því að hann var forstjóri Actavis og hins vegar um skuld sem Björgólfur taldi sig eiga hjá Róberti.
Fyrra málið snýst um klásúlu í samningi sem kvað á um að Róbert fengi fjörtíku milljóna áhættuþóknun fyrir árslok 2009, væri hann enn forstjóri Actavis eða honum sagt upp án tilefnis. Björgólfur tilkynnti Róberti í ágúst þetta ár að Actavis væri yfirskuldsett, gæti ekki greitt af lánum sínum og því ólíklegt að staðið yrði við samninginn.
Róbert höfðaði því dómsmál þar sem Björgólfur hélt því meðal annars fram að Róbert hafi hætt störfum fyrr en samið var um. Hann hafi hætt í sátt og uppsögnin því ekki án tilefnis.
Í Fréttablaðinu segir hins vegar að Björgólfur hafi talað af sér á heimasíðu sinni, því þar hafi hann í millitíðinn lýst því yfir að hann hefði rekið Róbert frá Actavis. Þennan skilning sinn staðfesti Björgólfur svo fyrir dómi.
Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að samkomulagið væri enn í gildi. Félög Björgólfs, sem eru eignalaus að hann sögn, skulda því Róberti 30 milljónir evra ásamt vöxtum, sem jafngilda 6 milljörðum evra.
Síðara málið snýst um ríflega sjö milljóna evra lán sem félagið BeeTeeBee Ltd. á Bresku Jómfrúareyjunum, í eigu Björgólfs, veitti eignarhaldsfélagi Róberts í mars 2005. Róbert gekkst síðar í persónulega ábyrgð fyrir láninu.
Róbert taldi að þeirri kröfu hefði þegar verið skuldajafnað í samræmi við ákvæði samkomulagsins sem fjallað er um í hinu málinu, en dómurinn segir ekkert liggja fyrir um að svo hafi verið. Því skuldi Róbert BeeTeeBee 7,7 milljónir evra, sem með þrjátíu prósenta umsömdum dráttarvöxtum jafngildir nú um 2,4 milljörðum króna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is