Laugardagur 17.03.2012 - 13:10 - Ummæli ()

Ólöf Nordal: 7 milljarðar af 27 farið í 110 prósent leiðina

Ólöf Nordal.

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á flokkráðsfundi flokksins, að 110% leiðin hefði engan veginn skilað tilætluðum árangri.

Í upphafi var gert ráð fyrir að um 27 milljarðar króna færu í þessa aðgerð.  Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur einungis 7 milljörðum verið varið í niðurfærsluna.  Helmingur þeirra sem voru yfir 110% markinu sáu strax að skilyrðin væru of ströng fyrir þá og sóttu alls ekki um.  Og af þeim sem þó sóttu um, var helmingi hafnað.  Einungis um fjórðungur  fjölskylda hafa því notið þessa úrræðis hjá sjóðnum.

Hún segir að vandinn sé mestur hjá ungu barnafólki.
Ríkisstjórnin sitji nú uppi með afleiðingar gengisdómsins þar sem hún hafi verið dæmd fyrir brot á Stjórnarskrá í Hæstarétti.

Við teljum nauðsynlegt að líta til verðtryggðra húsnæðislána með almenna aðgerð í huga – sem þó nær því markmiði að taka utan um þann hóp sem er í vandræðum og koma honum aftur á fætur.  Þá er það einnig skoðun okkar, að lengra þurfi að ganga í því að gefa fólki kost á að komast út úr verðtryggðum lánum í óverðtryggð.  Nú er það svo, að þeir sem geta færa sig í óverðtryggð lán í banka.  Það er mikilvægt að þeir sem eru fastir hjá Íbúðalánasjóði hafi einnig möguleika til að komast í þá stöðu að hafa val.

Við munum leggja fram lyklamálið svokallaða sem við teljum mikilvægt innlegg gagnvart þeim hópi sem getur ekki meir og vill byrja upp á nýtt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is