Sunnudagur 18.03.2012 - 12:39 - Ummæli ()

Hildur Lillendahl fékk ógeðfellt hótunarbréf – „Ég vil sjá þig brenna lifandi“

Hildur Lillendahl.

Hildur Lillendahl ætlar á mánudaginn að kæra til lögreglu morðhótanir sem henni bárust í gær. Í bréfinu lýsir hótandinn því á mjög „grafískan“ hátt hvernig hann ætlar að taka hana af lífi.

Hildur greinir frá þessu á Facebook síðu sinni, og segist hún hafa orðið „hrædd og skrítin“ þegar hún las bréfið, enda „ótrúlega grafískt og andstyggilegt“. Hótunarbréfið hljóðar svo:

Ég vil sjá þig dauða. Ég vil sjá þig brenna lifandi, ég vil vera sá sem hellir yfir þig olíu og starir á þig á meðan þú grátbiður um miskunn, síðan sleppi ég eldspýtunni. Þetta var ekki raunverulegt, það sem ég myndi gera ef ég dræpi þig er að ég myndi hakka þig í búta með veiðihnífnum mínum :)

Veistu í daglegu lífi lít ég út eins og hver annar, en ég er blóðþyrstur, ég VIL sjá blóð renna. Ég vil valda sársauka. Ég vil valda þér ómetanlegum sársauka. Ég vil ræna fólki, binda það niður, og skera það upp á meðan það horfir. Ég vil þræða þarmanna úr maganum á fólki og maka það út í þeirra eigin blóði. Ég vil sauma það saman aftur og og láta það éta sín eigin innyfli. VILTU VERA MEÐ?

Einnig var búið að taka skjáskot af nafni Hildar og heimilisfangi hennar af já.is og skrifa á það aðra hótun. Hún segist ætla að kæra ódæðið strax á mánudagsmorgunn.

Mér finnst svo yfirgengilegt og skelfilegt að einhver skuli hugsa svona um mig eða geta sagt þetta. Að einhvern langi í alvöru nógu mikið til að hrinda mér til að geta raunverulega sagt svona. Eða bara hugsað svona,

skrifar hún á Facebook síðu sína. Hildur var mikið í umræðunni fyrir nokkrum vikum eftir að hún tók saman ummæli nafngreindra einstaklinga á Facebook og birti í albúmi undir heitinu Karlar sem hata konur. Ummælin túlkaði hún sem fyrirlitningu í garð kvenna. Meðal þeirra sem lentu á lista Hildar voru Þráinn Bertelsson, Jakob Bjarnar Grétarsson og Sveinn Andri Sveinsson.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is