Viðskipti Fimmtudagur 22.03.2012 - 12:01 - Ummæli ()

Klúður stjórnsýslunnar gerði olíufélögunum kleift að komast upp með verðsamráð

Klúður innan stjórnsýslunnar varð til þess að íslenska ríkið þarf að endurgreiða olíufélögunum 1,5 milljarð króna í umfangsmesta samráðsmáli sem upp hefur komið hér á landi.

Eins og Eyjan skýrði frá fyrr í morgun felldi Héraðsdómur Reykjavíkur úr gildi þá ákvörðun samkeppnisyfirvalda að olíufélögin skyldu sektuð um samtals 1,5 milljarð króna vegna ólöglegs samráðs.

Í niðurstöðu Héraðsdóms segir að það liggi fyrir að félögin höfðu með sér ólöglegt samráð. Krafa olíufélaganna var hins vegar byggð á því að annmarkar voru á málsmeðferðinni þar sem málið var rannsakað bæði af hálfu samkeppnisyfirvalda og lögreglu. Það sé óheimilt. Enn fremur hafi andmælaréttur þeirra ekki verið virtur.

Ríkislögreglustjóri tilkynnti félögunum í september 2003 að Samkeppnisstofnun hefði afhent embættinu gögn um ólögmætt samráð þeirra og að opinber rannsókn væri hafin á brotunum.

Samkeppnisstofnun fékk einnig bréf frá ríkissaksóknara þar sem varað var við því að leggja stjórnvaldssektir á félögin, þar sem slík ákvörðun var talin geta leitt til þess að ókleift yrði að ná fram refsingu og önnur viðurlög í refsimáli sem kynni að vera höfðað.

Ekki var orðið við þessum tilmælum og hélt rannsókn áfram hjá báðum embættunum.

Í desember 2006 gaf ríkissaksóknari út ákæru á hendur forstjórum olíufélaganna. Hæstiréttur vísaði málinu frá í mars 2007, á þeim grundvelli að ekki var mælt fyrir um hvernig lögreglu bæri að haga rannsókn sinni væri til meðferðar hjá samkeppnisyfirvöldum. Þá var því ósvarað hvort lögreglurannsókn mætti fara fram á sama tíma og rannsókn samkeppnisyfirvalda eða hvort gert væri ráð fyrir að hún fylgdi í kjölfarið.

Eftir þennan dóm gerði Alþingi breytingar á samkeppnislögum sem fólu í sér að refsiábyrgð fyrirtækja var afnumin. Þannig átti að koma í veg fyrir að fyrirtæki væru til rannsóknar á tveimur stöðum. Átti því mál fyrirtækjanna einungis undir samkeppnisyfirvöld.

Ef einstaklingar voru undir lögreglurannsókn var það eftir kæru frá samkeppnisyfirvöldum og var óheimilt að nota gögn frá þeim í þeirri lögreglurannsókn. Segja má að með þessum breytingarlögum sé búið að girða fyrir að sama staða komi upp aftur og var í máli þessu.

Héraðsdómur segir það liggja fyrir að á tímabilinu 30. október til 29. janúar hafi málið verið rannsakað bæði af samkeppnisyfirvöldum og lögreglunni. Í niðurstöðu dómsins segir.

Þar sem um íþyngjandi ákvörðun var að ræða fyrir stefnendur, og ákvörðun sem varðaði verulega fjárhagslega hagsmuni, áttu stefnendur ótvíræðan rétt á að geta gætt hagsmuna sinna án þess að eiga það á hættu að upplýsingar þær er þeir veittu myndu rata á borð lögregluyfirvalda og vera notaðar gegn þeim þar. Við þessar aðstæður var andmælaréttur stefnenda lítils virði. Hér er því um að ræða verulegan annmarka á málsmeðferðinni sem leiðir til þess að felldur er úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála nr. 3/2005 frá 29. janúar 2005.

Niðurstaða Héraðsdóms er því sú að ríkið endurgreiði Keri 495 milljónir króna, Skeljungi 450 milljónir og Olís 560 milljónir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is