Viðskipti Fimmtudagur 22.03.2012 - 19:32 - Ummæli ()

Moody´s segir stjórnvöld á réttri leið – Herðing hafta flýtir fyrir afnámi þeirra

Þær ákvarðanir stjórnvalda að endurgreiða hluta lánsins frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum fyrr en áætlað var og herðing gjaldeyrishafta eru skref í rétta átt, að mati matsfyrirtækisins Moody´s.

Þrátt fyrir þessi jákvæðu skref telur Moody´s að þessar aðgerðir einar og sér gefi ekki ástæðu til þess að breyta lánshæfismati ríkisins. Segir í tilkynningu fyrirtækisins að Ísland þurfi enn á að halda digrum gjaldeyrisvaraforða þegar ráðist verður í það „vandasama“ verkefni að aflétta gjaldeyrishöftum.

Enn fremur fagnar Moody´s þeirri ákvörðun Alþingis að loka glufum sem voru til staðar í gjaldeyrishöftunum. Slík aðgerð auki líkurnar á því að hægt verði að afnema gjaldeyrishöftin hægt og rólega, og með skipulögðum hætti, í náinni framtíð, að því er segir á vef Bloomberg fréttaveitunnar. .


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is