Ósáttir við umfjöllun um andlát sjómanns – Er ekki nóg komið af óþarfa æsifréttamennsku?
Sjómenn eru óhressir með fréttaflutning af andláti skipverja um borð í togaranum Sigurbjörgu ÓF í gær. Þeir segja að blaðamenn hafi brotið gróflega gegn siðareglum blaðamanna og spyrja hvort ekki sé nóg komið af æsifréttamennsku.
Slysið varð um borð þar sem Sigurbjörg ÓF var stödd út af Straumnesi í gærmorgun. Skipverjar unnu við þrif og mun skipverjinn hafa klemmst. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug á staðinn með lækni innanborðs, en skipverjinn var látinn þegar að var komið.
Í orðsendingu frá skipverjum á Helgu Maríu AK eru blaðamenn minntir á siðareglur Blaðamannafélagsins, en í 3. grein þeirra segir að blaðamanni veri að sýna fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Þá skuli hann forðast allt það sem valdið getur saklausu fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu. Skipverjarnir segja að þessi grein hafi verið „gróflega brotin“.
Er ekki komið nóg af óþarfa æsifréttamennsku á Íslandi í dag? Tilfinningar fólks og andlát ástvina eru ekki æsifréttir,
segir í orðsendingunni sem birt er á vef Skessuhorns. Þá gekk yfirlýsing skipstjóra Sigurbjargar ÓF um atburðinn manna á milli á Facebook í gær. Þar sagði skipstjórinn Vilhjálmur Sigurðsson.
Í framhaldi af þessu hræðilega slysi sem varð um borð í skipi mínu í morgun, vildi ég óska að fjölmiðlar þessa lands temdu sér vandaðri vinnubrögð, eins Landhelgisgæsla Íslands, að vera ekki með beina útsendingu af slysstað. Það þarf að gefa viðkomandi aðilum séns á að hafa samband við aðstandendur sem tekur þó nokkurn tíma, ekki gott að þurfa að vera í kapphlaupi við fjölmiðla.
