Viðskipti Fimmtudagur 22.03.2012 - 13:10 - Ummæli ()

Uppgjörið við hrunið er að mistakast, segir Björgólfur Thor – Tapaði 70 milljörðum

Björgólfur Thor Björgólfsson segir að helsti lærdómurinn við Landsdómsmálið sé sá, að uppgjörið við hrunið sé að mistakast. Hann vill að skipuð verði sannleiks- og sáttanefnd sem starfar fyrir opnum tjöldum.

Björgólfur gerir Landsdómsmálið að umfjöllunarefni á heimasíðu sinni, sem hann segir hafa verið innlegg í uppgjörið við hrnið. Hins vegar hafi fátt nýtt komið fram í máli vitna.

Þó hafi málið leitt í ljós að lausafjárkrísan á alþjóðamarkaði varð dýrpi en nokkur hafði séð fyrir og ekki varð við neitt ráðið.

Sjálfur hef ég hugsað um það aftur og aftur hvort ég hefði getað gert eitthvað öðruvísi og stend í raun alltaf frammi fyrir því svari að mestu mistökin gerði ég á árunum 2002 – 2006. Eftir það fóru aðstæður að ráða fremur för. Ef ég horfi til baka á árin 2007 og 2008 sé ég ekki hvernig ég hefði getað komið í veg fyrir beint persónulegt eignatap sem nam um 70 milljörðum króna og er þá ekki meðtalið óbeint eignatap mitt vegna hinnar alþjóðlegu fjármálakreppu sem varað hefur nú í nærri fjögur ár.

Björgólfur minnist á vitnisburð tveggja vitna sem komu inn á hans mál fyrir Landsdómi, Tryggva Þórs Herbertssonar og Árna M. Mathiesen. Segir hann að vitnisburður þeirra tveggja breyti ekki þeirri skoðun hans, að hvorugur þeirra hafði fullnægjandi skilning á vanda bankakerfisins þegar þeir, ásamt öðrum ráðamönnum, voru að manga um örlög þess.

Helsti lærdómurinn af Landsdómi  er að uppgjörið við hrunið er að mistakast. Þau sakamál sem eru til umfjöllunar hjá sérstökum saksóknara eða eru komin fyrir héraðsdóm eru afmörkuð og munu ekki svara spurningum um það hvar Íslendingar sem þjóð og samfélag misstigu sig. Spurningin er hvort við það verði unað. Þessi atburður ristir það djúpt í þjóðarsálina að hið eina rétta er að fá allt upp á borð.Um það gildir hið gamalkveðna að betra er seint en aldrei,

segir Björgólfur og bendir á að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi sagt fyrir dómi að fram til þessa hafi ekki verið hlustunarskilyrði í samfélaginu til að gera upp hrunið. Sá tími sé nú hugsanlega runninn upp.

Ég ítreka enn þá skoðun mínaað Íslendingar eigi að skipa sannleiks- og sáttanefnd sem með skýrum markmiðum vinnur alla sína vinnu fyrir opnum tjöldum og í góðri samvinnu við allan almenning. Það verður langt ferli og vafalaust erfitt á köflum – en það er þess virði. Viðskiptalífið, stjórnvöld, Alþingi og fjölmiðlar eru enn rúin trausti. Við slíkar aðstæður verður ekki byggt upp til framtíðar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fyrrum útrásarvíkingur kallar eftir sannleiksnefnd, því skammt er síðan Jón Ásgeir Jóhannesson gerði slíkt hið sama.

Grein Björgólfs Thors má lesa hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is