Vigdís vill bæta við einni spurningu í þjóðaratkvæði um stjórnarskrá
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, hefur lagt fram breytingartillögu við þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að nýrri stjórnarskrá, sem haldin verður í sumar. Í tillögunni felst ein spurning.
Spurningin sem Vigdís vill leggja fyrir þjóðina hljóðar svo:
Vilt þú að stjórnvöld haldi áfram aðlögunar- og viðræðuferli Íslands og Evrópusambandsins?
Gefnir eru tveir valkostir, „já“ og „nei“. Spurning Vigdísar er ólík öðrum spurningum sem lagðar eru til í upprunalegri þingsályktunartillögu, að því leyti að ekki er gefinn upp valkosturinn „tek ekki afstöðu“.
Þá hefur Ásmundur Einar Daðason, einnig Framsóknarflokki, lagt fram samhljóða fyrirspurnir til allra ráðherra um atriði er snúa að aðildarumsókn að ESB. Ásmundur spyr alla ráðherra tveggja spurninga:
1. Hver er skoðun ráðherra á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
2. Hvernig hyggst ráðherra tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þáttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is