Þriðja kynslóð iPad fór í sölu í nótt – Biðu í röðum til að komast yfir gripinn

Röð hafði myndast fyrir utan Epli.is á Laugavegi í nótt, þegar verslunin var opnuð eina mínútu yfir miðnætti.
All nokkur fjöldi fólks beið í röð fyrir utan verslunina Epli.is á Laugavegi í nótt, þegar nýjasta iPad spjaldtölvan fór í sölu. Búist er við að yfir þúsund eintök seljist þessa helgina.
Spjaldtölvan gríðarvinsæla kom á markað í 10 löndum í síðustu viku, meðal annars Bandaríkjunum, og seldust ríflega 3 milljón eintök á fyrstu þremur dögunum.
Hér heima hafði umtalsvert magn verið forpantað, til að mynda 200 eintök hjá Epli.is. Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri, sagði við Eyjuna á dögunum að hann áætlar að selja yfir 1.000 stykki yfir fyrstu helgina.
Þótt ekki sé um stórkostlegar breytingar frá fyrri útgáfu, þá er í nýja iPad að finna nokkrar veigamiklar breytingar. Myndavélin hefur verið bætt til muna, örgjövinn er umtalsvert hraðari auk þess sem skjárinn er með mun betri upplausn en áður. Þá er iPad 3 tilbúinn fyrir 4G kerfið, en nú þegar er undirbúningur hafinn að uppsetningu þess kerfis hér á landi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is