Sérfræðingur segir munntóbak geta bjargað mannslífum – Stjórnvöld fari að segja sannleikann
Stjórnvöld verða að upplýsa almenning um að mun minni hætta stafar af reyklausu tóbaki en sígarettum og öðru reyktóbaki, segir norskur sérfræðingur. Hann telur að slíkar upplýsingar kunni að bjarga mannslífum og segir að kominn sé tími til að stjórnvöld segi sannleikann um skaðsemi munntóbaks.
Karl Erik Lund hefur rannsakað hegðun tóbaksneytenda í yfir 20 ár og hefur hann nýverið lokið viðamikilli rannsókn um skaðsemi reyktóbaks og reyklauss tóbaks.
Niðurstöðurnar eru þær að stór hluti reykingafólks telur að reyklaust tóbak sé alveg jafn skaðlegt og reyktóbak. Þar af leiðandi notar það ekki reyklaust tóbak þegar það reynir að hætta að reykja.
Lund segir þetta afar slæmt mál, því reyklaust tóbak sé að minnsta kosti 90 prósent skaðminna en reyktóbak.
Ef við fengjum dagreykingamennina til að skipta yfir í munntóbak, myndi það bjarga lífi þeirra. Reykingar eru lífshættulegar,
Þær munntóbakstegundir sem eru á norska markaðinum eru vissulega ekki hættulausar, en þær leiða hvorki til lungnakrabbameins né krabbameins í munni, og fylgnin á milli þeirra og hjartasjúkdóma er að líkindum mun lægri.
Rannsókn Lunds gekk út á að komast að því hversu meðvitaðir reykingamenn voru um hættuna af tóbaki. Í ljós kom að af þeim 2500 reykingamönnum sem tóku þátt, taldi yfir helmingur að reyklaust tóbak væri mun hættulegra en það er í raun og veru, samkvæmt þeim rannsóknum sem nú liggja fyrir.
Þeir sem voru meðvitaðir um hættuna voru fimm sinnum líklegri til að nota reyklaust tóbak til að hætta að reykja. Við vitum að reyklaust tóbak er mjög áhrifarík aðferð til að hætta að reykja, og mun áhrifameiri en til að mynda níkótínplástrar og níkótíntyggjó.
Lund segir að ástæðan fyrir þessum ranghugmyndum sé sú að heilbrigðisyfirvöld haldi þessum upplýsingum vísvitandi frá almenningi, líkast til vegna þess að þau óttast að ungmenni myndu annars halda að munntóbak sé skaðlaust.
Ég skil þetta vandamál. Það er mikilvægt að halda því til haga að reyklaust tóbak er ekki af hinu góða. En ég held að fólk eigi rétt á réttum upplýsingum þannig að það geti tekið upplýsta ákvörðun. Að öðrum kosti kemur það niður á trúverðugleika heilbrigðisyfirvalda.
Notkun munntóbaks meðal norskra ungmenna hefur aukist nokkuð hratt undanfarinn áratug. Í dag nota 8 prósent norskra ungmenna munntóbak að jafnaði, samanborið við 3 prósent fyrir 10 árum. Lund segir þetta ekki alslæma þróun.
Margir af þeim sem nota munntóbak eru líklega þeir sem annars hefðu byrjað að reykja, og þá er betra að þau hafi byrjað að nota munntóbak.
Anne Hafstad hjá norsku heilbrigðisstofnuninni er alls kostar ósammála rökum sérfræðingsins. Hún segir munntóbak bæði ávanabindandi og krabbameinsvaldandi og þess vegna geti heilbrigðisyfirvöld ekki mælt með reyklausu tóbaki sem aðferð til að hætta að reykja.
Miðað við þær upplýsingar sem við höfum í dag, þá er augljóst að reykingar eru hættulegri en munntóbak. Við erum alveg hreinskilin með það. En um leið er ljóst að munntóbak er einnig skaðleg vara.
Hafstad segir að skaðsemi munntóbaks hafi ekki verið rannsökuð nægilega mikið, fyrst og fremst vegna þess að sala munntóbaks er bönnuð á EES svæðinu, nema í Noregi og Svíþjóð. Þess vegna getur hún ekki lagt mat á þær fullyrðingar Lunds um að reykingar valdi 90 prósent meiri skaða en annað tóbak.
Hafstad bendir enn fremur á að það sé ekki hlutverk heilbrigðisyfirvalda að leiðrétta þær ranghugmyndir sem fólk hefur um skaðsemi tóbaks.
Okkar ábyrgð er að koma í veg fyrir að fólk byrji og haldi áfram [að nota tóbak].
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
