Gísli svarar ásökunum Björns fullum hálsi – Segir hann skjóta fyrst og spyrja svo
„En hvað gerist þegar dagskrárgerðarmenn Landans sýna þann kjark að ýta undir upplýsta umræðu um viðkvæmt mál? Jú, þá keppast menn við að væna þá um óheiðarleik og undirlægjuhátt,“ segir Gísli Einarsson, ritstjóri Landans, sem hafnar með öllu ásökunum Björns Bjarnasonar um áróður í þágu ESB.
Björn skrifaði pistil á Evrópuvaktina í gær þar sem hann sagði það „með ólíkindum“ að ritstjórn Landans hafi kosið að fjalla um byggðamál innan ESB. Sagði Björn að um „ESB áróður“ væri að ræða og gera ætti þá kröfu að þættir sem þessir væru merktir kostunaraðila, áhorfendum til glöggvunar. Gerði hann að því skóna að þátturinn hafi verið kostaður af ESB.
Gísli hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar ásökunum Björns með öllu. Í fyrsta lagi segir hann að Björn kjósi að kalla „vandaða og hlutlausa“ umfjöllun um byggðastyrki sambandsins „ESB áróður“ án þess að rökstyðja það með neinum hætti.
Því hafna ég að sjálfsögðu enda var fjallað um þetta efni frá öllum hliðum og dregnir fram bæði kostir og gallar þessa hluta byggðastefnu,
segir Gísli. Í öðru lagi hafnar hann því að umfjöllunin hafi brotið í bága við efni þáttarins. Telur Gísli sig hafa þokkalega yfirsýn yfir efnistök Landans, enda hefur hann yfirumsjón með þeim.
Staðreyndin er sú að Landinn hefur ítrekað fjallað um byggðamál með ýmsum hætti. Hugsanleg aðild að ESB myndi væntanlega hafa umtalsverð áhrif hér á landi, ekki síst á landsbyggðinni. Það deila menn hinsvegar um hvort þau áhrif yrðu til góðs eða ills en hvort sem er, þá er það byggðamál!
Gísli segir enn fremur að Björn láti það hljóma sem þátturinn hafi fengið efni tilbúið í umslagi, sent utan úr bæ – eða Brussel – og sett það inn í þáttinn. Gísli segir það fjarri, enda efnið alfarið unnið af dagskrárgerðarmnnum RÚV.
Það sem er athyglisverðast í grein Björns er hinsvegar þessi setning: „Það ætti að gera kröfu til þess að þættir sem þessir séu merktir kostunaraðila svo að áhorfendur átti sig á því hvers kyns er. “ þetta er ekki hægt að skilja öðruvísi en fullyrðingu um að umrædd umfjöllun hefði verið kostuð að hluta til eða öllu leyti af utanaðkomandi aðila.
Björn telur það greinilega sér sæmandi að skjóta fyrst og spyrja svo. Eða öllu heldur spyrja alls ekki. Hefði hann spurt hefði hann fengið að vita að kostnaður við gerð innslagsins var að öllu leyti greiddur af RÚV, að sjálfsögðu. Bara rétt eins og með öll önnur innslög sem gerð hafa verið fyrir Landann. Björn hefði líka getað fengið afrit af fylgiskjölum þar að lútandi, hefði hann bara beðið um það.
Stundum kjósa menn að spyrja ekki vegna þess að svarið hentar þeim ekki. Ég tek þó fram að ég hef ekki hugmynd um hvort það á við í þetta sinn.
Gísli ítrekar að Landinn hafi ekki þegið neinar greiðslur af ESB, gjafir eða fyrirgreiðslur af neinu tagi, né hafi þættinum verið boðið slíkt.
Þetta hefði Björn líka fengið að vita hefði hann spurt. Mér þykir hann hinsvegar ekki hafa sýnt sannleikanum neina sérstaka forvitni en í staðinn fór hann þá leið að búa til sína eigin útgáfu af honum.
Loks segir Gísli:
Undanfarin misseri hafa heyrst háværar kröfur um upplýsta umræðu um helstu hagsmunamál þjóðarinnar og fréttamenn eru vændir um kjarkleysi ef þeir fjalla ekki um ákveðin mál. Een hvað gerist þegar dagskrárgerðarmenn Landans sýna þann kjark að ýta undir upplýsta umræðu um viðkvæmt mál? Jú, þá keppast menn við að væna þá um óheiðarleik og undirlægjuhátt.
Ég kveinka mér ekki undan gagnrýni, að ég tali nú ekki um ef hún er málefnaleg. Ég hafna hinsvegar þessari nýju tísku, sem alltof margir ástunda, að smíða samsæriskenningar í tengslum við hvaðeina sem þeim líkar ekki að heyra í fjölmiðlum. Þær samsæriskenningar byggjast gjarnan á því að viðkomandi umfjöllun sé sprottin af illum hvötum fréttamannsins eða hann sé þvingaður, neyddur, plataður eða keyptur til að fjalla um málefni eða setja hlutin fram á ákveðinn hátt.
Landinn er frétta – og þjóðlífsþáttur á vegum fréttastofu RÚV. Okkar hlutverk er að fjalla um hvað eina sem fólki í landinu gæti verið viðkomandi. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr þá á Ísland í aðildarviðræðum við ESB. Ég, sem ritstjóri Landans, tel að það komi fólkinu í landinu við.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is