LÍÚ segir kvótafrumvarp kippa fótunum undan fjölmörgum fyrirtækjum
Landssamtök íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, segja að með nýju kvótafrumvarpi sé horfið frá kröfum um hagkvæman sjávarútveg, verið sé að leggja ofurskatta á greinina og gera aflaheimildir upptækar til pólitískrar endurúthlutunar.
Slíkar aðgerðir munu draga allan hvata úr núverandi kerfi, koma í veg fyrir fjárfestingar, gera íslenskan sjávarútveg óhagkvæman og leggja þungar byrðar á landsbyggðina,
segir í frétt á vef LÍÚ, þar sem útgerðarmenn bregðast við frumvarpi sem ríkisstjórnin kynnti fyrr í dag. Þeir segja að ekkert samráð hafi verið haft við gerð frumvarpsins, og að þeim hafi enn ekki gefist kostur á að greina það í heild.
Forsvarsmenn LÍÚ halda því fram að með frumvarpinu ætli ríkið sér að taka til sín 70 prósent af áætluðum hagnaði útgerðar og fiskvinnslu í gegnum svokallað veiðigjald. Slík ofurskattlagning komi til með að kippa rekstrargrundvelli undan fjölmörgum sjávarútvegsfyrirtækjum víðsvegar um landið.
Þá sé frumvarpið til þess fallið að hvetja til skammtímahugsunar og slæmrar umgengni um auðlindina, þar sem í raun sé verið að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu í skattheimtukerfi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is