Sölvi íhugar að hætta að borga af bílaláninu – Hef ekki geð í mér að borga af ólöglegu láni
„Ég hef alltaf viljað standa við mitt. Þetta er ekki há upphæð og ég get alveg borgað þetta en ég veit ekki hvort ég hafi geð í mér til að gera það,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason sem veltir því fyrir sér hvort hann eigi yfir höfuð að borga af bílaláni sínu.
Eins og Eyjan hefur greint frá hafa bankarnir tekið hann pól í hæðina að innheimta afborganir af gengislánum með hefðbundnum hætti, þrátt fyrir þá óvissu er uppi vegna gengislánadóms Hæstaréttar í febrúar.
Sölvi, sem sjálfur var með erlent bílalán, veltir því nú fyrir sér hvort hann eigi að greiða af láninu. Hann segir á Facebook síðu sinni:
Nú stend ég frammi fyrir sérkennilegri ákvörðun. Hef alla ævi greitt allt mitt á réttum tíma, en hef eiginlega ekki geð í mér að borga af bílaláni sem búið er að dæma ólöglegt, eins og ekkert hafi átt sér stað. Ég Hreinlega skil ekki að fjármálastofnanir skuli leyfa sér að rukka áfram eins og þær séu hafnar yfir lög!
Í samtali við Eyjuna segist Sölvi ekki enn búinn að gera upp hug sinn.
Eindaginn er liðinn og ég er ekki enn búinn að borga. Þetta er svona svipað ef ég yrði dæmdur fyrir að svíkja undan skatti, en ég færi samt fram á það að fá að gera það í nokkra mánuði til viðbótar vegna einhverrar óvissu. Ég held að það yrði ekki tekið vel í það. Það sem ég skil ekki er hvers vegna óvissan er alltaf neytandanum í óhag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is