Þingmenn þreyttir á hægagangi forseta við að setja sér siðareglur – Taka málin í sínar hendur
Sjö þingmenn úr stjórnarliðinu, auk Atla Gíslasonar, hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem forsætisráðherra er falið að gera siðareglur við embætti forseta Íslands. Þingmennirnir telja nauðsynlegt að bregðast við niðurstöu rannsóknarnefndar Alþingis.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Álfheiður Ingadóttir, en auk hennar koma Árni Þór Sigurðsson, Atli Gíslason, Valgerður Bjarnadóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Þráinn Bertelsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson að tillögunni.
Í greinargerð tillögunnar er vísað í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem meðal annars er vísað til „óeðlilegra samskipta viðskiptalífs og stjórnmálaforustunnar í landinu en einnig eru tíunduð tengsl og samskipti forseta Íslands við útrásarvíkinga og ráðamenn í íslensku og erlendu fjármálalífi. “
Var það niðurstaða nefndarinnar að skýra þyrfti hlutverk forsetans betur, setja reglur um hlutverk hans, verkefni og samskipti við önnur ríki auk þess sem æskilegt væri að setja embættinu siðareglur, þar sem meðal annars yrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðlilegt að hann veiti viðskiptalífinu stuðning.
Einnig segir í greinargerðinni að stjórnvöld hafi brugðist við niðurstöðum nefndarinnar með margvíslegum hætti. Þannig hafi verið sett ný lög um Stjórnarráð Íslands þar sem er að finna ákvæði um siðareglur fyrir stjórnsýsluna sem taka til allra starfsmanna stjórnarráðsins, þar með talið ráðherra.
Enn bólar ekkert á setningu siðareglna fyrir forsetaembættið, nær tveimur árum eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis leit dagsins ljós 12. apríl 2010,
segir í greinargerðinni, heldur þvert á móti hafi forsetaembættið þráast við að setja slíkar reglur. Er vísað til bréfaskrifta milli forseta Íslands og forsætisráðuneytisins árið 2010. Þar taldi forsetinn að ráðuneytið hafi farið út fyrir valdsvið sitt þegar innt var eftir því hvort og hvenær slíkar reglur yrðu settar.
Telja flutningsmenn brýnt að Alþingi, sem einróma skipaði rannsóknarnefndina, hlutist til um að embætti forseta Íslands taki fullan þátt í slíkri sáttargjörð við þjóðina. Í því skyni verði settar góðar og gildar siðareglur sem embættinu beri að fylgja. Slík vinna fari fram með gagnsæjum hætti í anda lýðræðislegra umbóta sem nauðsynlegar eru í eftirleik hrunsins. Því er þingsályktunartillaga þessi flutt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is