Þriðjudagur 27.03.2012 - 20:40 - Ummæli ()

Þorsteinn Már afþakkaði að útskýra mál sitt í Kastljósi

Þorsteinn Már Baldvinsson hafnaði beiðni Kastljóss um að útskýra mál sitt, málefni Samherja og fyrirtækisins Icefresh GmbH í dag.

Í umfjöllun Helga Seljan í Kastljósi kvöldsins, um aðgerðir dagsins, kom fram að Samherji hefur á undanförnum árum selt afla, til dótturfyrirtækis síns Icefresh Gmbh, erlendis á verði sem er mun lægra (allt að þriðjungi) en getur talist í eðlilegum viðskiptum. Um er að ræða afla upp á hundruð milljóna króna.

Rannsóknin sem hófst klukkan níu í morgun snýr að útflutningi Samherja á síðustu misserum, eftir að Seðlabankanum bárust gögn frá Kastljósi um útfluting fyrirtækisins. Gögnin snúa að ofangreindu fyrirtæki í eigu Samherja í Þýskalandi en sala milli þeirra á karfa var til umfjöllunar.

Elín Björg Ragnarsdóttir framkvæmdarstýra Samtaka fiskútflytjenda sagði að með slíkri aðferð, án þess að fullyrt væri um Samherja, væri hægt að selja fisk á lágu verði úr landi og hirða gróðann erlendis. Fyrirtæki geti bætt stöðu sína  með því að gefa upp lágt söluverð og þar með lækkað útgjöld.

Í yfirlýsingu frá Þorsteini frá því fyrr í kvöld kom eftirfarandi fram:

Samherji selur mikið magn afurða sinna í gegnum sölufyrirtækin sín, Ice Fresh og Seagold. Verðlagning í þeim viðskiptum er í alla staði rétt og eðlileg og engum gjaldeyri haldið eftir sem skila ber.  Karfaviðskiptin sem sjónvarpsþátturinn og Seðlabankinn virðast telja tortryggileg nema um það bil 0,1% af veltu Samherja. Þau viðskipti svo og öll önnur viðskipti Samherja við dótturfélög sín eru fullkomlega lögleg og í sama farvegi og þau voru löngu fyrir gjaldeyrishöftin og Seðlabankinn hefur kynnt sér. Eftir þessum reglum hefur verið farið í hvívetna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is