Miðvikudagur 28.03.2012 - 22:23 - Ummæli ()

Borgarstjórinn spenntur fyrir Betri Reykjavík – Vefur á heimsmælikvarða, segir Jón

,,Power to the people" segir borgarstjóri

Jón Gnarr borgarstjóri er spenntur fyrir íbúakosningunum sem hefjast eftir miðnætti í kvöld.

Reykvíkingum gefst eftir miðnætti og til 3.apríl kostur á að hafa bein áhrif á framkvæmdir í nærumhverfi sínu, því þá verður hleypt af stað rafrænum íbúakosningum. Kosið verður um verkefni í hverfi borgarinnar á síðu Betri Reykjavík en verkefnið ber heitið Kjósum betri hverfi.

Aðspurður um þátttöku sína segir borgarstjórinn:

Já ég er mjög spenntur fyrir þessu og mun taka þátt. Ég mun alltaf gera það, bæði sem borgari og borgarstjóri. Þetta eru byrjunarskref en kerfið er í sífelldri þróun og möguleikarnir verða meiri. Þetta er lýðræðisleg og hagkvæm aðferð.

Um þróun beins lýðræðis og hvort þátttaka almennings skipti máli fyrir Betri Reykjavík segir Jón:

Beint lýðræði er framtíðin. Það er ekki fullkomið. Ég hef fylgst með þessari þróun bæði hér heima og í útlöndum, ss. Kaliforníu og Sviss. Vefurinn Betri Reykjavik er á heimsmælikvarða. Við höfum möguleika á að vera leiðandi og öðrum til fyrirmyndar. Árangur er í jöfnu hlutfalli við þáttöku (ég vel að nota 1 T) og þess vegna hvet ég alla borgarbúa til að taka þátt. Power to the people!

Í tilkynningu um íbúakosninguna segir:

Kosið verður um 180 áhugaverð verkefni í hverfum borgarinnar. Um er að ræða verkefni sem fegra og bæta hverfin. Kostnaður við verkefnin er mismunandi, sum kosta lítið en önnur meira, allt upp í tíu milljónir króna.  Reykjavíkurborg leggur 300 milljónir úr svokölluðum hverfapottum í verkefnin og er þeim úthlutað til hverfanna miðað við íbúafjölda. Þau verkefni sem fá mest fylgi í íbúakosningunum munu koma til framkvæmda í sumar.

Öll er framkvæmdin hin aðgengilegasta, í það minnsta fyrir þá sem hafa skilað skattframtali rafrænt:

Auðkenning Ísland.is er notuð við atkvæðagreiðsluna og nota kjósendur kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki á debetkorti til að auðkenna sig. Allir sem eiga lögheimili í Reykjavík og voru orðnir 16 ára um síðustu áramót geta greitt atkvæði í íbúakosningunum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is