Klækjastjórnmál Sjálfstæðisflokksins gagnrýnd
Stór orð féllu á þingfundi sem hófst á Alþingi klukkan 10:35 með atkvæðagreiðslunni sem beðið hefur verið eftir frá því í nótt. Hart var deilt á gjörðir Ragnheiðar Elínar Árnadóttur og vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins ítrekað kölluð klækjastjórnmál.
Þingmenn virðast upplifa atburði næturinnar með ólíkum hætti eina og Eyjan greindi frá í morgun. Róbert Marshall sagðist hafa séð Gunnar Braga Sveinsson lauma sér út úr þinghúsinu í nótt þegar hann mætti sjálfur til að greiða atkvæði. Hafði þingflokksformaður Framsóknarflokksins þó í morgun sagt að þingmenn flokksins hafi yfirgefið húsið áður en atkvæðagreiðslan var ákveðin.
Magnús Orri Schram sagði beiðni Ragnheiðar Elínar í nótt, um atkvæðagreiðslu eftir fyrri umræðu, fordæmalausa og undir það tók Álfheiður Ingadóttir og Margrét Tryggvadóttir sem að lokum lagði til að ólögleg glæpasamtök yrðu bönnuð og uppskar við það hlátur úr röðum þingmanna meirihlutans.
Gagnrýni kom einnig fram á meðferð málsins og sagðist Lilja Mósesdóttir hafa áhyggjur af orðalagi spurninganna, lagði hún einnig til að spurning 5 yrði felld út og haldið í þá ákvörðun að 10% kosningabærra manna gætu farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fram kom í máli nokkurra þingmanna, meðal annars úr röðum Framsóknarflokks og VG að þeir hefðu ekki fengið skilaboð í nótt um að atkvæðagreiðsla myndi eiga sér stað.
Að lokum samþykkti Alþingi rétt fyrir klukkan ellefu að tillaga meirihluta stjórnskipunarnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu færi til síðari umræðu. Jafnframt var samþykkt að vísa tillögunni til eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Alþingis.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
