Föstudagur 30.03.2012 - 12:42
- Ummæli
()
Herdís á leið í forsetaframboð? Boðar til blaðamannafundar í dag
Dr. Herdís Þorgeirsdóttir hefur boðað fjölmiðla til fundar síðdegis í dag. Ekki kemur fram hvert efni fundarins er, en hún hefur verið orðuð við forsetaframboð að undanförnu.
Fundurinn verður haldinn klukkan þrjú í Listasafni Reykjavíkur. Afar líklegt er að efni fundarins snúi á einhvern hátt að embætti forseta, því ekki er langt síðan Herdís skrifaði grein um embættið sem vakti mikla athygli, þar sem hún gagnrýndi ægivald fjármagnsins yfir lýðræðinu.
Herdís starfar sem lögmaður í Reykjavík. Hún er forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga og starfar mikið fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins á sviði mannréttinda.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
